151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[01:33]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér stórt mál og ég ætla að leyfa mér að segja það að ég held að þetta sé stærra mál og mikilvægara mál en margan grunar vegna þess að þetta er svo mikið mál til framtíðar. Þetta snýst um framtíðina okkar, börnin okkar og þetta snýst líka um það hvernig við viljum sjá samfélagið byggjast upp. Ég er ekki bara að vísa í jafnréttismál í þessu þótt jafnréttisvinkillinn sé gríðarlega stór. Ég er líka að vísa í það mikilvæga mál að við höldum hér uppi fæðingartíðni. Það er nefnilega áhyggjuefni hvað fæðingartíðni hefur farið minnkandi á síðustu árum. Þó að við séum enn þá ung þjóð miðað við margar af samanburðarþjóðum okkar víða í Evrópu þá er þetta áhyggjuefni. Við ætlum nefnilega að verða gömul og við ætlum að fá að njóta þess velferðarsamfélags sem Ísland hefur upp á að bjóða en til þess þarf vinnandi hendur þegar við verðum ellilífeyrisþegar. Það er sú hætta sem við stöndum frammi fyrir og þess vegna er svo mikilvægt að við byggjum upp samfélag sem ýtir undir það að á sama tíma og ungt fólk gerir kröfu til þess að geta sinnt námi sínu, geta sinnt starfi sínu, náð framgangi í starfi, sinnt félagslífi og öðru þess háttar, öllu því sem lífið hefur upp á að bjóða, þá þarf fólk líka að hafa tækifæri til þess að fjölga sér og byggja upp fjölskyldur.

Mig langar aðeins í þessu sambandi að vísa í áhugaverða umsögn um frumvarpið sem kom frá Ásdísi A. Arnalds og fleirum. Þar segir m.a. varðandi fæðingatíðnina, með leyfi forseta:

„Nýleg rannsókn þar sem borin er saman fæðingartíðni á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð sýndi að í öllum þremur löndunum var líklegra að fólk eignaðist annað barn ef faðir hafði tekið fæðingarorlof. Sömuleiðis sýndi rannsókn Ara K. Jónssonar að tilkoma laga um fæðingar- og foreldraorlof árið 2000 varð til að stöðva þá hnignun sem hafði verið í fæðingartíðni fram að setningu laganna og líkurnar á að fólk eignaðist sitt annað og þriðja barn jukust. Á hinn bóginn dró verulega úr fæðingartíðni á ný í kjölfar bankahruns, eftir að þak á greiðslur í fæðingarorlofi lækkaði og það dró úr fæðingarorlofstöku feðra.“

Þess vegna m.a. er svo mikilvægt að báðir foreldrar taki fæðingarorlof. Það er líka mikilvægt að við hækkum þakið. Við þurfum án efa líka að hækka gólfið en þá þurfum við einnig að huga að því hvernig Fæðingarorlofssjóður er fjármagnaður. En ég kem kannski að því síðar.

Jafnréttismál eru ekkert gæluverkefni. Þau eru beinhart efnahagsmál og þess vegna er svo mikilvægt að við séum með sjálfstæðan rétt feðra til töku fæðingarorlofs. Það hefur nefnilega sýnt sig að sá sjálfstæði réttur til feðra sem okkur tókst að skapa hér með fæðingarorlofslögunum frá árinu 2000 er það sem hafði mest áhrif á jafnrétti kynja. Auðvitað er þetta sambland af fullt af þáttum en þetta er stóri þátturinn. Þetta hafði ekki bara, og það er samt risastórt, áhrif þegar kemur að því að ung kona kemur út á vinnumarkaðinn og er að sækjast eftir starfi. Það hafði vissulega áhrif þar, að atvinnurekandinn horfði ekki á konu og segði: Jæja, þú er kannski að fara í fæðingarorlof. Ég ræð frekar þennan unga karlmann því að það eru minni líkur á því hann fari í fæðingarorlof. Þetta jafnaði þá stöðu en þetta hefur líka áhrif til lengri tíma litið. Feðurnir ná að bindast börnunum betri böndum og þar af leiðandi sinna þeir þeim líka í framtíðinni. Þannig jafnast munur kynjanna á heimilunum. Það skiptir svo miklu máli. Í grunninn er þetta eiginlega orðið, og ég held að það sé stóra atriðið hér, og á að vera baráttumál fyrir feður. Það er ástæða fyrir því að ljósmæður hérna innvikla feður meira og meira inn í fæðingarferlið sem slíkt. Eitt af því mikilvægasta er t.d. að feður fái barnið á brjóst sér, þ.e. skinn við skinn aðferðin, því að tengslamyndun alveg á fyrstu mínútunum skiptir máli og þeim mun mikilvægara einmitt að karlmenn fái tækifæri til að sinna börnunum í fæðingarorlofi.

Ég ætla líka að benda á að ég held að það sé þannig, og ég hef sjálf farið þá leið, að við mæður verðum bara stundum allt of frekar á þessi börn og gefum karlmanninum eða feðrunum allt of lítil tækifæri til að vera þátttakendur í ferlinu. Ég held að það sé algerlega rannsakað í þaula mikilvægi þess að karlmenn fái að taka raunverulegan þátt í uppeldi barnanna frá fyrstu tíð. Þar skiptir fæðingarorlofið aftur mjög miklu máli.

Ég ætla að fá aftur að koma inn í þessa áhugaverðu umsögn frá Ásdísi A. Arnalds og fleirum. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Þá kom fram í nýlegri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar að íslensk ungmenni, af báðum kynjum, mátu samskipti sín við feður jákvæðari en börn frá öllum samanburðarlöndunum, 41 talsins. Rannsóknin náði til fyrstu árganganna sem nutu góðs af auknum rétti feðra til töku fæðingarorlofs og hafa rannsakendur leitt að því líkur að þessi árangur sé afleiðing af auknum möguleikum feðra til að annast um börn sín í kjölfar þess að þeir öðluðust sjálfstæðan rétt til töku orlofs. Nýlegar samanburðarrannsóknir á samskiptum foreldra og barna á Norðurlöndunum benda einnig til þess að tengsl séu milli lengdar fæðingarorlofs feðra og gæða tengslamyndunar þeirra við börn sín.“

Aftur: Þetta er ekki bara spurning um fyrstu mánuðina heldur um alla framtíð.

Mér finnst líka áhugavert í þessari sömu umsögn, svo ég fái aftur að vísa í hana, þegar er verið að tala um skilnaðartíðni. Auðvitað er það ekki þannig að fæðingarorlofslögin hafi verið sett með það að markmiði en það er samt sem áður þannig að með tilkomu sjálfstæðs rétts feðra til fæðingarorlofs dró úr skilnaðartíðni á Íslandi. Mér finnst það líka mjög áhugaverð niðurstaða. Þessi sjálfstæði réttur feðra skiptir svo miklu máli út frá menningu á vinnustöðum og þá ætla ég að segja það sem ég hef ekki sagt í þessari ræðu hér en ég sagði það við 1. umr., að ég styddi frumvarpið eins og það leit út þá, þ.e. með skiptingunni sex, sex. Mér fannst líka ástæða til þess að hafa þennan eina mánuð framseljanlegan því að aðstæður geta verið misjafnar. En ég bætti því líka við í þeirri ræðu að það kynni að vera mikilvægt að gera einhverjar breytingar á því til að koma til móts við ólík sjónarmið. Við sjáum það á umsögnunum. Við erum með ofboðslega góðar og flottar umsagnir, m.a. sem ég hef verið að vísa í hér, frá helstu sérfræðingum okkar uppi í háskóla í jafnréttismálum, félagsráðgjöf o.fl. sem mæla með jafnri skiptingu. En við fengum líka mjög mikið af umsóknum sem fara í hina áttina og segja að það þurfi að auka frelsi foreldra því að aðstæður séu misjafnar. Ég ætla því að þakka hv. velferðarnefnd fyrir nefndarálitið og breytingartillögur sínar og held að þeim hafi tekist alveg ofboðslega vel til.

Og vegna þess að í ræðum áður hefur verið rifjuð upp forsaga fæðingarorlofsins og hvað við erum búin að tala mikið í langan tíma og hversu mikilvægt er þess vegna að stíga þetta skref núna langar mig að segja að við höfum lengi talað um þetta sem fimm, fimm, tveir. Ég held að það sé svo miklu betri leið að tala um sex, sex, og nú erum við búin að bæta einu sex-inu við, sem er mjög flott í þessu sambandi sérstaklega. Ég held að það sé svo mikilvægt að þetta séu réttindi hvers einstaklings um sig og þau geti svo samið með einhverjum hætti um að færa hann yfir. Ég held að það skipti miklu meira máli vegna þess að við höfum séð það að feður hafa hingað til tekið sinn sjálfstæða rétt en almennt ekki úr þessum svokallaða potti. Það er sú menning sem hefur einhvern veginn skapast. Það er horft á konuna: Já, þú tekur að sjálfsögðu þinn sjálfstæða rétt og sameiginlega réttinn. Á meðan karlmaðurinn er litinn hornauga ætli hann sér að taka meira en sjálfstæðan rétt sinn. Það er auðvitað menning og ég er ekki að segja að við breytum henni bara með einni löggjöf en löggjöfin hefur gríðarlega mikil áhrif. Þess vegna held ég að við séum að stíga ofboðslega farsælt skref hér með þessar sex vikur, mér finnst það ákveðin nýsköpun og mér finnst það góð lending.

Það er meira sem þarf að gera í þessum málaflokki og þá verðum við að horfa til sveitarfélaganna. Sveitarfélögin verða að hafa burði til þess að bjóða upp á afbragðs dagþjónustu og leikskólaþjónustu frá því að fæðingarorlofi sleppir. Ég ætla líka að leyfa mér að kasta því fram að sveitarfélögin megi koma með aðrar lausnir. Sjálf er ég mjög hlynnt ungbarnaleikskólum. Ég held að öll börn ættu að fara í leikskóla vegna þess að það er fyrsta skólastigið, það er bara spurning á hvaða aldri það nám á að hefjast. En það eru aðrar lausnir sem hægt er að nota. Dagforeldrar eru ein lausn en það eru líka ákveðnar greiðslur til heimilishjálpar og annað sem geta nýst í þeim efnum. En stóra málið er auðvitað það að foreldrar þurfa hafa burði til að eignast börn og sinna vinnu sinni eins og þeir kjósa og þá skiptir auðvitað þessi þjónusta sveitarfélaganna með daggæslu og svo leikskólana gríðarlega miklu máli.

Að lokum ætla ég að segja þetta: Næsta skref ætti auðvitað að vera að hækka tekjuþakið og fæðingarstyrkinn. Ég held að það sé brýnt. Ég fagna því stóra og mikilvæga skrefi sem við erum að stíga hér og vil líka brýna okkur áfram í því að horfa til þess að hækka þakið. En á sama tíma, eins og ég sagði áðan, verðum við að horfa á fjármögnun sjóðsins. Og á þeim tíma sem við erum núna, þar sem við erum að lækka tryggingagjaldið og þeim er að fjölga sem eru á atvinnuleysisskrá, þá þurfum við að huga að framtíð Fæðingarorlofssjóð og fjármögnun hans til lengri tíma. En það væri enn stærra skref áfram í jafnréttisbaráttunni að hækka þetta þak.