151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[01:45]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er svolítið gaman að hlusta á umræðuna í dag af því að ég held að við áttum okkur öll á því að málið er í stóru myndinni, eins og það var lagt upp með í byrjun, framfaraskref. Í rauninni var á sínum tíma samþykkt lenging á fæðingarorlofinu upp í 12 mánuði. Hún var síðan dregin til baka en í fyrra var hún samþykkt aftur og byrjað að lengja fæðingarorlofið í áföngum og nú erum við að fullklára það. Það eru um 20 ár síðan ég stóð einmitt hér og tók þátt í umræðu um löggjöf sem var tímamótalöggjöf, löggjöf sem aðrar þjóðir litu til okkar með, þegar við breyttum fæðingarorlofsmálunum og innleiddum níu mánaða fæðingarorlof sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir barnið, líka tengsl foreldra við barn en ekki síst út jafnréttismálum. Það var eins og við þekkjum skiptingin þrír, þrír, þrír og ekki millifæranlegir þeir þrír mánuðir sem hvoru foreldri var úthlutað.

Auðvitað er margt búið að gerast síðan þá, sem betur fer, og ekki síst vegna þess að það mál átti stóran þátt í því að fórum fram á við í jafnréttismálum, en ekki síður hitt að það voru ýmsar aðrar ákvarðanir sem við tókum umdeildar, m.a. innan flokka sem eru núna í ríkisstjórn. Við erum að tala um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja, ég viðurkenni það fúslega að ég var mjög skeptísk á það. Ég var ekki hlynnt því og taldi að fyrirtækin yrðu að hafa frelsi til að ákveða það sjálf, þau myndu gera þetta ef þau fengju hvata. En það gerðist ekki neitt fyrr en aðhaldið kom frá löggjafanum. Fyrst þegar aðhaldið var veitt á sínum tíma með kynjakvótann var sagt: Þið hafið tvö ár til að bregðast við. Þau tvö ár nýttu fyrirtækin því miður ekki nægilega vel og því fór sem fór að það var lögfest að setja á kynjakvóta í fyrirtækjum.

Um daginn átti sér svo stað athyglisverð umræða um frumvarp sem ýtir í rauninni á það að fyrirtæki fullfylgi lögum varðandi kynjakvóta í fyrirtækjum sem eru með 50 manns eða fleiri. Þá kom aftur í ljós þessi ágreiningur á milli flokka og milli þeirra sem eru íhaldsflokkar að mínu mati. Það var ljóst að bæði Sjálfstæðisflokkurinn en ekki síður Miðflokkurinn voru eindregið á móti því að fyrirtæki með 50 og fleiri væru í rauninni þvinguð með löggjöf til þess að fullnægja kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja.

Ég segi þetta til að bregða upp ákveðinni mynd sem við höfum af því hvernig flokkar eru og það er ekkert að því. Í því felst ekki ómálefnaleg gagnrýni. Flokkar hafa mismunandi hugmyndafræði og það hvernig fólk nálgast þetta mikilvæga mál sem er að ná jafnrétti á landinu. Við höfum ólíka sýn hvað það varðar og auðvitað breytist hún líka frá tíma til tíma. Við sjáum að þegar þetta mikilvæga mál var samþykkt árið 2000 var draumurinn að ná 12 mánuðum og það er það sem við erum að ræða í dag, 20 árum síðar. Í dag hef ég þá skoðun að miðað við aðstæður, m.a. hjá foreldrum, hjá sveitarfélögum, hver staðan er þar vítt og breitt um landið, sé ástæða til að við setjum markið aðeins hærra og ræðum fullum fetum um 18 mánaða fæðingarorlof þar sem skiptingin gæti verið níu, níu á milli foreldra. Það er ákveðin framtíðarmúsík en það er gaman að leyfa sér að geta þessa í hvert skipti sem við tökum skref í jafn mikilvægu máli og þetta er.

Árið 2000 var þetta ekki síst gert með samkomulagi við vinnumarkaðinn. Vinnumarkaðurinn lagði mjög ríka áherslu á þetta. Málið sem við erum að tala um núna er ekki beint afsprengi þess samtals við vinnumarkaðinn eins og það var gert á sínum tíma, en það er hins vegar alveg skýrt hver sjónarmið vinnumarkaðarins eru. Tökum sem dæmi sjónarmið BHM, BSRB, Samtaka atvinnulífsins. Þau hafa lagt ríka áherslu á það hvernig skiptingin á að vera. Skiptingin hefur nefnilega þýðingu fyrir jafnréttismál, fyrir stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Það er rétt sem hér hefur verið haldið fram, m.a. af hálfu hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, að það er fleira en skiptingin sem hefur þýðingu fyrir það hvernig við náum fram jafnrétti. Ég tek undir það. Hækkun á þakinu er gríðarlega mikilvæg samhliða því hvernig við skiptum. En skiptingin sjálf hefur þýðingu. Vel að merkja leggjum við í Viðreisn fram breytingartillögu af því að við erum komin í, ég ætla ekki að segja öngstræti, en við erum með tillögu frá meiri hlutanum sem er málamiðlunartillaga, vond málamiðlunartillaga að mínu mati. Hún er afturför. Hún er ákveðið bakslag miðað við það hvernig var lagt upp með málið. En af því að málum er svona háttað er óhjákvæmilegt að leggja fram tillögu um hækkun á þakinu samhliða þessu.

Það er enn þá þannig, ég heyri það eftir að hafa hlustað á allar ræðurnar í dag, að verið er að nota frelsið, það dásamlega hugtak sem hefur verið svo fjarri stjórnarflokkunum allt kjörtímabilið, til að reyna að réttlæta það að niðurstaðan verði sú að konan muni á endanum taka fleiri mánuði í fæðingarorlofi. Þar sem er lítið jafnrétti, og ég veit ekki hversu oft við höfum sagt það, er lítið frelsi. Ef það er ekki jafnrétti er ekkert frelsi. Þá er ekki hægt að segja að fólk hafi val um eitt eða neitt. Þá er ekki hægt að draga þetta fallega orð valfrelsi inn í slíka umræðu, ef við erum ekki með jafnrétti. Hluti af skyldu okkar og ábyrgð sem löggjafa, þegar við erum að fara í breytingar á jafn mikilvægri löggjöf eins og þessi er, er einmitt að hugsa út frá því hver séu markmiðin með frumvarpinu. Meginmarkmiðin eru vissulega barnið, að tryggja barninu tengsl við foreldrana, að báðir foreldrarnir tengist barninu á þeim dýrmæta tíma. En markmiðið er ekki síður jafnrétti. Jafnrétti var svolítið rauði þráðurinn í þeirri umræðu sem við áttum hér fyrir 20 árum. Fólk skildi það af hverju við þurftum að fara í þessa vegferð, sem er ekkert búin. Við verðum nefnilega að hafa úthald til að klára jafnréttismálin. Við verðum að hafa úthald því að við erum ekki búin að klára þetta. Öll viðmið, allar tölur sýna fram á að það er enn þá kynbundinn launamunur á vinnumarkaði. Staða kvenna er enn þá veikari á vinnumarkaði en karla. Við þurfum að laga það. Við erum ekki búin og þá megum við ekki vængstýfa svona ótrúlega dýrmætt tæki eins og lög um fæðingarorlof eru.

Ég vil leyfa mér að vitna í Pétur heitinn Blöndal sem sagði á sínum tíma í mjög góðri ræðu sinni, með leyfi forseta:

„Til þess að hæfileikar hvers einstaklings nýtist þjóðfélaginu til fulls verður að ríkja fullt jafnrétti til starfa þannig að hæfasti einstaklingurinn verði ætíð ráðinn. Svo er ekki í dag. Misrétti á milli fólks birtist í misrétti milli karla og kvenna sem er hrópandi og það verður að laga með öllum tiltækum ráðum.“

Þetta er svo augljóst sem hann sagði, eins og það er átakanlega augljóst að svona rödd er ekki lengur að finna innan Sjálfstæðisflokksins, svo að ég segi það alveg hreint út eftir að hafa hlýtt á ræður þingmanna. Þetta er nákvæmlega nálgunin sem var á sínum tíma og var lykillinn að því að farið var út í þessa framsýnu löggjöf. Gott og vel, við eigum að nota 20 árin og meta hvort ástæða sé til að breyta. Eru gögn til til þess að við getum sagt: Já, við ætlum að fara í ákveðinn snúning á þessu með tilliti til þess að minnka óframseljanlegan rétt feðra? Eru einhvers staðar viðmið sem við höfum? Norðmenn litu til okkar á sínum tíma og fóru einmitt í viðmið eins og við vorum með, með óframseljanlegan rétt feðra. Eins og ýmsir sérfræðingar hafa bent á, og má sjá til að mynda í mjög góðri grein Ingólfs V. Gíslasonar, Sigrúnar Júlíusdóttur og Guðnýjar Bjarkar Eydal í Morgunblaðinu, sýnir nýlegt dæmi í Noregi glögglega áhrifin af skrefum sem Norðmenn tóku í krafti og í ljósi valfrelsis. Árið 2014 sögðu þeir: Já, við ætlum að stytta þennan óframseljanlegan rétt feðra um fjórar vikur. Það dró strax úr töku feðra. Í ljósi þeirrar reynslu ákváðu Norðmenn að endurreisa réttinn til fyrra horfs og frá árinu 2018 hefur hann verið 15–19 vikur eins og hann var áður. Og hvað gerðist í Noregi? Jú, feður tóku aftur aukið orlof. Ekki er lengri tími en síðan í fyrra að við lengdum fæðingarorlofið í fjóra, fjóra, tvo. En hvað gerðu feður? Þeir juku töku sína á fæðingarorlofi úr þremur mánuðum í fjóra. Þeir gerðu það. Og við tryggðum barninu rétt sinn til að vera í tengslum við báða foreldra. Nýtum reynsluna, nýtum líka reynslu þeirra þjóða sem við viljum alla jafna bera okkur saman við, í því skyni að hætta ekki og slaka ekki á í baráttunni í jafnréttismálum um leið og við hlúum að því hvernig við hugum að barninu og því umhverfi sem við búum fjölskyldum á þessum dýrmæta tíma í lífi allra fjölskyldna.

Það er óhjákvæmilegt að nefna þetta með valfrelsið og þær ábendingar sem komu í samráðsgáttinni. Það er rétt að mjög margar ábendingar komu um að svokallað svigrúm ætti að vera meira. Þetta eru nákvæmlega sömu raddirnar og við þurftum að takast á við fyrir 20 árum. Þau sjónarmið komu líka fram þá. En ef okkur er alvara í því að klára þessa leið okkar í átt að auknu jafnrétti, stuðla að auknu jafnrétti, nota öll tæki og tól til þess og vera óhrædd við það, þora að koma hingað inn í þingsalinn og tala fyrir því sem við teljum rétt, sem er að stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði, stuðla að jöfnum rétti kynja hvar sem við erum í samfélaginu, þá nýtum við tækifærið hér innan dyra til að gera það. Ég vil leyfa mér að vitna í manneskju sem er víðsýn, framsýn, frelsisins einstaklingur, hefur barist fyrir frelsinu alls staðar þar sem hún hefur komið og það er Ásdís Halla Bragdóttir. Hún skrifaði á Facebook-síðu sína um daginn, með leyfi forseta:

„Á Alþingi er nú tekist á um fæðingarorlof og hvernig eigi að skipta því á milli foreldra. Stóra spurningin er: Á helmingur þess að vera bundinn föður? Það var ekki fyrr en með lengingu fæðingarorlofs árið 2000 að karlar fengu sjálfstæðan rétt til töku fæðingarorlofs. Staðreyndin er sú að í 50 ár var fæðingarorlof með lögum bundið við konur. Með þeirri miðstýringu festi ríkið í sessi þau kynjahlutverk að konum væri ætlað að vera heima hjá ungum börnum en karlar ættu að vera á vinnumarkaði. Nú á sem betur fer að lengja fæðingarorlof á nýjan leik. Ýmsir íhaldssamari þingmenn“ — og vel að merkja er það ekki ég sem er að segja þetta, það er Ásdís Halla Bragadóttir sem skrifar þetta — „telja að foreldrar eigi að hafa fullkomið val um hvernig fæðingarorlofinu er skipt og að ekki eigi að binda hluta þess við feður. Ég styð valfrelsi einstaklingsins og skil þau sjónarmið en svo rík hefð er fyrir því frá fornu fari að einungis mæður taki fæðingarorlof að allar líkur eru á að sú hefð haldi áfram nema hluti orlofsins sé bundinn við feður. Það er jafnframt eina leiðin til að vinnumarkaðurinn „sleppi hendinni“ af körlum og hleypi þeim inn á heimilin til að annast nýfædd börn sín. Rannsóknir sýna að tengsl barna við feður sína hafa styrkst verulega eftir að hluti fæðingarorlofs var bundinn við þá. Breyting á því yrði stórt skref aftur á bak.“

Ég tek undir þetta. Þetta draga aðilar vinnumarkaðarins fram, það koma mjög skýr skilaboð þaðan. Ég vil líka taka undir það sem hæstv. forsætisráðherra sagði fyrr í dag þegar við afgreiddum önnur mál sem tengjast mikilvægum skrefum í jafnréttismálum: Jafnréttismál eru ekki gæluverkefni. Það var að vissu leyti virðingarvert þegar forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna tók til sín jafnréttismálin í forsætisráðuneytið til að undirstrika mikilvægi jafnréttismála. Við vitum alveg hvað hefur átt sér stað hér á göngum þingsins, hvaða þrýstingur hefur verið settur af hálfu Sjálfstæðisflokksins á að ekki sé hægt samþykkja upplegg félagsmálaráðherra, sem kemur úr Framsóknarflokknum. Og vel að merkja hefur Framsóknarflokkurinn staðið vaktina í jafnréttismálum, í þessu máli eins og hann gerði fyrir 20 árum. Það hlýtur að vera erfitt fyrir hæstv. félagsmálaráðherra að þurfa að kyngja þessari breytingu, af því að þetta er breyting. Einhverjir segja: Þetta eru ekki nema tvær vikur. En þetta er prinsippbreyting. Við erum að gera það sama og Norðmenn gerðu sem hafði neikvæð áhrif á töku feðra á fæðingarorlofi. Þess vegna segi ég: Þetta er neikvæð breyting. Þetta er bakslag. Þetta er afturför. Mér finnst þetta ekki framsýni og mér finnst sárt, af því að ég veit að Vinstri græn og Framsókn eru með hjartað í þessum málum, að sjá þau þurfa að lúffa fyrir þriðja samstarfsflokknum. Þannig er málum háttað hér í dag.

Það er margt annað mjög mikilvægt í þessu máli. Verið er að taka á mikilvægum réttindum einstæðra foreldra, foreldra sem eru búsettir á landsbyggðinni o.s.frv. Það er svo margt annað gott í þessu. En stóra prinsippmálið er skiptingin, sem er búið að vera að krukka í vegna óánægju Sjálfstæðisflokksins, og mér finnst miður að hún hafi orðið fórnarkostnaður í þeim hrossakaupum sem hafa átt sér stað á göngum þingsins undanfarna daga. Ég hélt ekki að Vinstri græn myndu gefa eftir í þessu máli og ekki heldur Framsókn eftir allar sterku ræðurnar, innihaldsríku ræðurnar, innihaldsríku greinarnar. Ég finn að það er ákveðinn sársauka í þessu og ég deili þeim sársauka með því ágæta fólki sem skipar þessa flokka. Ákall mitt til þingmanna í stjórnarliðinu er að samþykkja ekki þessa breytingartillögu, láta reyna á það hvort meiri hluti sé fyrir því að halda uppleggi a.m.k. félagsmálaráðherra eins og það var í upphafi. Ég held að það væri þess virði að láta reyna á hvort hægt væri að ná meiri hluta fyrir þeirri tillögu hans.

Málamiðlun er orð yfir eitthvað sem er stundum ágætt en er oftar en ekki til þess að breiða yfir eitthvað sem fólki líður illa með. Þá ættu menn og konur bara að segja það, að þetta hafi verið málamiðlun við öfl sem hafa hingað til ekki haft það að leiðarljósi og ekki haft það í stafni að tala fyrir jafnrétti þegar færi gefst. Með þessu (Forseti hringir.) er ég ekki að tala niður einn eða neinn flokk. Mér finnst bara sárt að sjá framvindu þessa máls, þessa annars góða máls sem ég í heildina styð, en ég get ekki stutt þá breytingartillögu sem meiri hluti þingsins leggur til og þar með stjórnarflokkarnir. Ég mun segja nei við henni en já við málinu í heild.