fæðingar- og foreldraorlof.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágætisyfirferð yfir þennan málaflokk sem skiptir gríðarlega miklu máli, ekki síst yfir söguna um þau skref sem stigin hafa verið. Ég er sammála hv. þingmanni um að það er gríðarlega mikilvægt að huga að því að aldrei verði farið til baka í þessum málum heldur alltaf horft fram á veg. Ég hjó eftir að hv. þingmaður staldraði ekki lengi við skrefið sem var stigið til baka árið 2013 þegar 12 mánaða fæðingarorlofi var hent út og farið aftur í gamla kerfið. En þar sem ég veit að hv. þingmaður kom að þeirri ákvörðun langar mig að spyrja hv. þingmann hvaða áhrif hún upplifði af þeirri ákvörðun á þessi mál, hvort það bakslag hefði haft einhver áhrif sem sú ríkisstjórn sem hv. þingmaður sat í (ÞKG: 2013?) 2013 — er það rangt hjá mér? Var það ekki ríkisstjórn 2013–2016? (Gripið fram í: Nei.) Heyrðu, þá bið ég forláts. En hv. þingmaður var í stjórnmálum. Ég er í raun og veru að fiska eftir bakslaginu sem varð, óháð því hver tók ákvörðunina, af því að við þurfum öll að vera, og ég er sammála hv. þingmanni, á tánum með það. Ég bið forláts á rangfærslunni. Það var óvart.