151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[02:08]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Um leið finnst mér, ég veit ekki hvort rétt sé að segja ánægjulegt en mér finnst gott að finna fyrir ástríðunni sem þingmaðurinn hefur greinilega fyrir málinu. Staða hans er örugglega ekki auðveld í þessu. Það er aldrei auðvelt að vera í meiri hluta. Ég geri mér alveg grein fyrir því.

Ríkisstjórnin stóð á sínum tíma frammi fyrir þessari ákvörðun. Ég var ósammála henni en ég geri mér líka grein fyrir að ástæðurnar hafa eflaust verið efnahagslegar. En ég segi líka, og hef oft notað það, að alltaf sé rétti tíminn til að hugsa um að lækka skatta, þó að sumum finnist aldrei rétti tíminn til að lækka skatta, þá er alltaf rétti tíminn til að hugsa um jafnrétti. Á svona tímum eins og við upplifum núna og líka í efnahagskrísu — við erum náttúrlega vonandi bara tímabundið í krísu og þó að hún sé risastór bindum við vonir við að við náum okkur fljótt upp úr henni og viðspyrnan verði sterk og mikil — þá má ekki líta á jafnréttismálin sem eitthvert aukamál. Við verðum að passa prinsippin. Það er kannski ákall mitt til alls þingheims, að gefa ekki eftir í jafnréttismálum af því að sagan dæmir það ekki vel. Sagan dæmir ekki vel ákvörðunina 2013 um að taka til baka 12 mánaða fæðingarorlof. Það var ekki skynsamleg ákvörðun, sem er augljóst, ég held að ég þurfi ekki að útskýra af hverju það var ekki skynsamleg ákvörðun. En gott og vel, ég ætla ekki að vera algerlega í þeim neikvæða gír en ég vara fólk við, því að í heildina er málið gott en það er að taka á sig verri mynd en við hefðum þurft að fara í.