fæðingar- og foreldraorlof.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er sammála og deili þeirri skoðun að huga þarf vel að þessum skrefum og einmitt því að það verði ekki bakslag. En ég ætlaði akkúrat í seinna andsvari mínu að koma inn á það sem hv. þingmaður endaði á, þ.e. að í heildina væri málið gott, og kannski draga það fram og biðja hv. þingmann — af því að nú erum við að horfa í baksýnisspegilinn, sem mér leiðist reyndar ekki og þá ekki vegna þess að ég sé einhver afdankaður íhaldskurfur heldur vegna þess að ég er sagnfræðingur — að horfa aðeins líka til framtíðarinnar og til þeirra skrefa sem þó er verið að stíga núna, einmitt í mánaðafjöldanum. Ég spyr hvort hv. þingmaður deili ekki þeirri gleði með mér og fleirum að við séum þó að stíga þau skref að komast áfram á þann stað sem við vorum á árið 2013, að við séum þó komin á þann stað, óháð því hvernig sex vikunum verður á endanum skipt, að hvort foreldri um sig fái aukinn rétt og hvort það sé ekki fagnaðarefni, alveg óháð því hvernig sú skipting verður.