fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Jú, það er fagnaðarefni að við séum að stíga 12 mánaða skrefið, en ég vil líka að áhyggjur mínar af útfærslunni séu skráðar héðan úr pontu og fari inn í þingtíðindi. Útfærslan skiptir máli upp á stöðu kvenna á vinnumarkaði. Við þekkjum það mætavel og það hefur margoft verið tekið sem dæmi að þegar vinnuveitandi stendur frammi fyrir því að ráða þrítugan karl eða þrítuga konu og hefur fjárfest mikið í starfsfólki þá er vitað mál — og þetta dæmi tók Pétur Blöndal heitinn fyrir og við vitum það sem höfum staðið í rekstri að það er raunhæft — að þá velur vinnuveitandinn karlinn af því að það er ólíklegra að hann fari í fæðingarorlof en konan. Staða kvenna verður að styrkjast á vinnumarkaði og þess vegna skiptir útfærslan miklu máli. Og ég lýsi enn og aftur yfir vonbrigðum með þessa málamiðlun. Já, ég gæti sagt að ábyrgð Vinstri grænna væri mikil en ég finn líka til með þeim af því að þau eru í forystu fyrir ríkisstjórn og þurfa að halda ríkisstjórninni saman. Ég geri mér grein fyrir öllu þessu. En þess þá heldur finnst mér ábyrgð hinna stjórnarflokkanna vera mikil að taka þátt í þessu.
Það hefur gerst áður að stjórnarandstaðan hefur liðkað til og hjálpað ríkisstjórnarflokkunum við að koma málum í gegn, eins og t.d. kvenfrelsismálinu í tengslum við þungunarrof þar sem hluti Sjálfstæðisflokksins var á móti því máli. Þá kom náttúrlega stjórnarandstaðan og hjálpaði ríkisstjórnarflokkunum. Ég vildi láta reyna á það í þessu máli líka af því að ég veit að innst inni vilja Framsóknarfólk og Vinstri græn ekki þessa leið. Hún er ekki fyrsti valkostur þeirra. (Forseti hringir.) Þau hafa verið þvinguð þangað. Mér finnst miður að það sé að verða niðurstaðan (Forseti hringir.) í annars ágætu máli. Ég vil draga það fram. Það er framfaraskref að sjá fram á að fæðingarorlofið sé að lengjast í 12 mánuði (Forseti hringir.) en útfærslan er ekki góð.