fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég vil í lok umræðunnar þakka þeim hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í henni kærlega fyrir þátttökuna, málefnalega þátttöku og að öllum stofni til góðar ræður. Eftir að hafa setið hér í rúma fimm klukkutíma og hlustað á hverja einustu ræðu hef ég alla vega sannfærst um að verið er að stíga mikið framfaraskref. Við erum að lengja fæðingarorlofið úr tíu mánuðum í 12. Við skulum ekki gleyma því, hv. þingmenn, að það skiptir gríðarlega miklu máli. Eðli málsins samkvæmt og kannski einmitt vegna þess að staðan er þannig á árinu 2020 að stór hluti og stærsti hluti þingheims er farinn að átta sig á því að jafnrétti skiptir gríðarlega miklu máli og þess vegna tala menn um hvað skiptingin skipti miklu. Þess vegna skiptir máli að við skilgreinum sex mánuði sem réttindi hvers og eins foreldris. Þess vegna skiptir svo miklu að við erum líka að lengja þann rétt sem menn geta ekki verið að skipta út. Hvort tveggja skiptir gríðarlegu miklu máli.
Mönnum hefur orðið tíðrætt bæði um þakið og gólfið. Mönnum hefur orðið tíðrætt um umönnunarbilið sem við vitum að er enn þá til staðar. Í mínum huga er lausnin á þessum þremur, hvað eigum við að segja, vandamálum næstu skref sem við eigum að huga að í sambandi við að bæta fæðingarorlofslöggjöfina á Íslandi. Þar kemur bráðabirgðaákvæðið líka að góðum notum því að lögin verða endurskoðuð eftir tvö ár, þegar búið er að keyra þessa löggjöf í eitt tímabil réttinda, þ.e. 24 mánuði.
Það er gleðilegt að þingheimur skuli stórt séð vera samtaka í málinu og tilbúinn til að taka þetta mikilvæga framfaraskref í þágu jafnréttis á Íslandi.