kynrænt sjálfræði.
Herra forseti. Já, ég tel að þrátt fyrir þessi ummæli hafi hér verið vandað til verka og að málið hafi fengið mikla og góða umfjöllun. Þetta er eitt af þeim atriðum þar sem kirfilega er tekið fram að gera megi aðgerðir á börnum enda sé það talið heilsufari þeirra nauðsynlegt. Auðvitað vill fólk stundum geta rætt eitthvað nánar og ítarlegar og mér finnst allt í lagi að það komi fram. Það hefur verið rökstutt fyrir nefndinni að eins og staðan er í dag meti sérfræðingar það mikilvægt að þarna sé hægt að grípa inn í. Það kom einnig fram fyrir nefndinni að það séu nýjar rannsóknir, að nýir hlutir séu að gerast. Þess vegna er eðlilegt að setja þetta inn en skoða það síðan aftur, með tilliti til þeirrar þekkingar sem verður komin eftir nokkur ár, að fara sérstaklega yfir þetta. Þannig að já, ég tel að allt bendi til þess að frumvarpið sé vel úr garði gert og byggt á þeim allra bestu upplýsingum sem tiltækar eru á þessu sviði.