kynrænt sjálfræði.
Virðulegi forseti. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að ég hafi ekki alveg náð því hvað hv. þingmaður á nákvæmlega við þegar hann talar um að verið sé að flækja málin. En ég ætla að reyna að svara samkvæmt þeim skilningi sem ég öðlaðist á spurningunni og þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel þetta mál og svona mál í eðli sínu almennt flókin. Ég ber alveg virðingu fyrir því að fólk láti sig varða hagsmuni barna þegar það er með ólíkar skoðanir á þessu máli. Og ég ber alveg virðingu fyrir fullorðna fólkinu sem ég kallaði í ræðu minni heimskt sem var að reyna að hjálpa mér á sínum tíma. Þessu fólki gekk gott eitt til og allt fullorðna fólkið var í hjarta sínu með fórnarlambinu í liði. En það er bara svo mikilvægt þegar við erum að eiga við félagsleg vandamál að við skiljum skýrt hvar ábyrgðin liggur. Það er frekar dæmigert í mannlegu samfélagi að það sé óljóst fyrir fólki. Eitt frægasta dæmið í mannlegu samfélagi er kannski þegar kemur að kynferðisofbeldi, hversu auðvelt samfélaginu hefur fundist að kenna fórnarlambinu um þar. Það er reyndar kannski ekki af sama hlýhug og gagnvart barninu sem verður fyrir einelti, en undirstaða vandamálsins sem það veldur er sú sama, að ábyrgðin er sett á rangan stað. Ef þetta er ekki skýrt þá skil ég mjög vel að þetta mál verði mjög flókið. En það sem ég er að segja er að þetta á að vera skýrt. Við eigum að hafa það skýrt hvar við setjum ábyrgðina. Ef hv. þingmaður á við flækjustigið sem kemur af því hvort um læknisfræðilegt inngrip eða líffræðilegt inngrip sé að ræða, þá tel ég það aftur vera eðli málsins. Líffræðin er flókin, við erum flóknar verur (Forseti hringir.) á líkama og sál. Það flækir málið óhjákvæmilega.
En mig grunar (Forseti hringir.) að ég hafi misst af einhverju sem kom ekki fram í spurningu hv. þingmanns.