151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[11:29]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Flækjuna tel ég vera afleiðingu af því að hérna hafa líffræðileg inngrip félagsleg áhrif. Það er akkúrat þess vegna sem það er andstaða við þessi inngrip, þ.e. vegna þess að fólk sér félagslegar afleiðingar þeirra eða ábyrgðina á þeim aðra en líffræðileg einkenni einstaklingsins sem varð fyrir inngripinu. Kannski orða ég þetta fullflókið. Það liggur í eðli hlutarins þar sem um er að ræða líffræðileg inngrip sem andstaða er við vegna breytinga á félagslegum prinsippum, að þetta tvennt fer saman í þessu frumvarpi. Ég sé ekki alveg hvernig hægt er að aðskilja þetta, ég sé ekki hvernig hægt er að fyrirbyggja ónauðsynleg inngrip sem einungis eru gerð af félagslegum aðstæðum án þess að tala bæði um líffræðilegu inngripin og félagslegu afleiðingarnar sem þau geta haft. Ég veit að hv. þingmaður og Miðflokksmenn eru gagnrýndir harðlega fyrir sínar skoðanir í þessum efnum, en ástæðan fyrir því held ég að sé sú að hv. þingmenn Miðflokksins virðast ekki taka tillit til þess í orðræðu sinni, eins og í þessu máli, hvar ábyrgðin liggur. Þegar fólk er látið sæta ábyrgð sem það ber ekki þá verður það eðlilega reitt og upplifir árás á sig. Það held ég að valdi því sem hv. þingmaður nefndi í þeim efnum. (Forseti hringir.) Ég vildi óska þess að við hefðum meiri tíma til að ræða það alveg sérstaklega, (Forseti hringir.) en það er ekki alveg víst að ponta Alþingis sé vettvangurinn til þess. En alla vega lýsi ég (Forseti hringir.) mig reiðubúinn til að eiga það samtal.