kynrænt sjálfræði.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og ég þakka honum fyrir að segja frá reynslu sinni í æsku. Við þekkjum það að einelti getur markað einstaklinginn til lífstíðar. Einelti er svo sannarlega birtingarmynd hins synduga eðlis mannsins.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins, af því að ég veit að hann hefur kynnt sér þetta vel og hann undirbýr sig vel áður en hann tekur hér til máls og sérstaklega í málum sem þessum.
Ég minntist á það í ræðu minni áðan að í hinu virta læknablaði Harvard-háskóla, Harvard Medicine Journal, eru þessi mál rædd. Þar er rætt um að tilfelli um ódæmigerð kyneinkenni séu sjaldgæf, kennsluefni sé áfátt og gloppur séu í rannsóknargögnum. Það geri það að verkum að sérfræðingar eigi í vandræðum með að átta sig á því hvernig best sé að sinna þessum einstaklingum. Ofan á það bætist síðan þrýstingur frá mannréttindasamtökum.
Þeir læknar og sérfræðingar sem hlynntir eru aðgerð á barni með ódæmigerð kyneinkenni, og þetta kemur frá Bandaríkjunum, úr hinu virta læknatímariti, hafa sett fram eftirfarandi rök: Börnin munu ekki muna eftir aðgerðinni, sár gróa hraðar og minna er um blæðingar, börnin alast ekki upp óörugg um kyn sitt og börnin og fjölskyldur þeirra verða ekki fyrir einelti. Í læknablaðinu er jafnframt talað um að þessi ódæmigerðu kyneinkenni séu flókin viðfangsefni, læknisfræðilega, pólitískt og með öðrum hætti og að sérstaklega á síðustu misserum hafi þetta svið beinlínis verið yfirtekið (Forseti hringir.) af ákveðnum hópum sem hafi gert það að verkum að sérfræðilæknar hafi hreinlega ekki (Forseti hringir.) hugrekki til að ræða þessi mál.
Mig langar til að fá álit hv. þingmanns (Forseti hringir.) á því sem ég rakti hér.