kynrænt sjálfræði.
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi, eins og ég hef rakið hér áður, er gert ráð fyrir að fyrir því í frumvarpinu að það sé ekki alltaf alveg ljóst hvað er nauðsynlegt og hvað er ekki nauðsynlegt. Það á ekkert sérstaklega við um kyneinkenni, það á við um heilbrigðisvísindi almennt. Þetta eru flóknar spurningar sem sérfræðingar eru þjálfaðir í að svara og hafa helgað líf sitt að svara. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að slíkir sérfræðingar fari með slíkar spurningar og ég tel það vera skynsamlegu lausnina. Ég tel slíkt vera best geymt í þeim höndum ef það svarar einhverjum hluta af spurningu hv. þingmanns. Heimsmynd hv. þingmanns er svo ólík minni að það er úr svo mörgu að velja þegar hv. þingmaður spyr. Mig langar til að velja eitthvað sem svarar sem best því sem hv. þingmaður vildi fá svar við. En hann nefndi að í þeim gögnum sem hann vísar í sé talað um að fólk sé ekki óöruggt um kyn sitt og verði ekki fyrir einelti og þess háttar ef það fer í tilteknar aðgerðir á unga aldri. Ég veit svo sem ekki nákvæmlega hvað ég get vísað í meira en ræðu mína til að svara því upp að því marki sem ég skil hvað hv. þingmaður er að fara. En það sem er í gangi núna úti um allan heim, vona ég, en vissulega á Íslandi, er vitundarvakning um að kyn er ekki jafn svart og hvítt, það er ekki jafn hægri vinstri, það er ekki jafn mikið upp og niður, það er ekki jafn skýrt og við höfum átt að venjast út frá menningarlegum og hefðbundnum sjónarmiðum í þeim efnum. Mannkynið er flóknara en svo að við séum einfaldlega karlar eða einfaldlega konur. Í umhverfi þar sem það er einfaldlega gert ráð fyrir tveimur kynjum og einungis tveimur kynjum er ekkert skrýtið þó að fólk upplifi óöryggi um kyn sitt ef því finnst það ekki ljóst gagnvart sjálfu sér til að byrja með. Þá er vandinn ekki fólkið sjálft, þá er vandinn ekki (Forseti hringir.) óræða kynið. Þá er vandinn samfélagið (Forseti hringir.) sem ætlast til þess að við föllum öll í sama normið og pössum öll í sama boxið, því að það er einfaldlega ekki tilfellið.