151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[11:39]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þótt það vanti gögn á einum stað þá er ekki þar með sagt að það vanti gögn annars staðar. Það er alþekkt að þegar vísindamenn eru að rannsaka eitt eða annað þá vantar stundum gögn, en svo finnur einhver annar gögnin, eða einn hefur aðgang að þeim og annar ekki. Ég vil benda á tvær staðreyndir sem mér að vitandi eru óumdeildar. Það hafa verið framin inngrip, líffræðileg inngrip á einstaklingum án samþykkis þeirra, bara til þess að þjóna félagslegum, menningarlegum viðhorfum, af þeirri einu ástæðu. Ég hef ekki heyrt neinn segja að þetta hafi ekki verið þannig í gegnum tíðina, það hefur verið þannig í gegnum tíðina samkvæmt öllu sem ég veit um málið, og reyndar er þekking mín á málinu frá því fyrir nokkrum árum síðan þegar ég var að skoða þetta, þannig að sú vitneskja er væntanlega ekki það óþekkt, geri ég ráð fyrir. Önnur staðreynd er að það er til fólk — ég hef tekið höndina á þessu fólki og spjallað við það og skrifað niður glósur eftir samtöl við þetta fólk, ég er viss um að ég var þarna, mig dreymdi það ekki — sem varð fyrir þessum inngripum og er verulega ósátt við það og hefur beðið verulegan skaða í lífi sínu af þeim sökum. Þaðan kemur þrýstingurinn á að breyta þessu fyrirkomulagi og þess vegna er þessi lagabreyting lögð til hér.

Hvað varðar læknisfræðilegu spurningarnar sem hv. þingmaður vísar í þá tel ég að þær spurningar eigi best heima í höndum sérfræðinga sem þekkja til. Af lestri mínum á frumvarpinu að dæma fæ ég ekki betur séð en að það sé nákvæmlega þannig; að það séu sérfræðingar sem meti hvað séu nauðsynlegar aðgerðir, hverjar afleiðingar þeirra séu, á hvaða forsendum þær aðgerðir eru gerðar o.s.frv. Það er ekki verkefni okkar hér í pontu að útkljá þetta fyrir hvern og einn einstakling, eins og hv. þingmaður veit mætavel, (Forseti hringir.) og ég var ekkert að mótmæla. En ég fæ ekki betur séð en að frumvarpið taki tillit til þeirra athugasemda eða spurninga sem hv. þingmaður spurði.