151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[12:21]
Horfa

Páll Magnússon (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal takmarka þetta andsvar mitt við bara eina einfalda spurningu til hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Komið hefur ítrekað fram í hans mörgu ræðum um þetta mál og annarra hv. þingmanna Miðflokksins að þeir telji að í þessu frumvarpi felist sú meingerð gagnvart börnum að ekki verði ekki heimilt að gera á þeim nauðsynlegar og æskilegar læknisaðgerðir í frumbernsku. Nú liggur það fyrir að Læknafélag Íslands styður þetta frumvarp, landlæknir styður þetta frumvarp, barnalæknar, sérfræðingar Landspítalans styðja þetta frumvarp, barnaskurðlæknar Landspítalans styðja þetta frumvarp. Því er spurning mín til hv. þingmanns: Telur hann að allir þessir læknar sem ég hef hér tilgreint hafi látið blekkjast til stuðnings við þetta frumvarp, eða telur hann að þeir hafi vísvitandi gengið gegn öllum sínum starfsreglum, starfsheiðri, Hippókratesareiðnum til að þóknast þá hverjum, í þessari meingerð læknasamfélagsins gagnvart börnum?