151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

horfur um afhendingu bóluefnis vegna Covid-19, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:44]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegur forseti. Talandi um litakóðakerfið þá liggur það fyrir að Ísland virðist vera í einhverjum áhættufasa núna. Landið allt er merkt rautt sem mönnum finnst hálf óskiljanlegt og það leiðir mig að seinni spurningu minni sem varðar sóttvarnaaðgerðirnar sem eru í gildi. Það virðist vera alls kyns misræmi í gangi með það sem rökstutt er t.d. með vísan í mismunandi smithættu. Ég tek sem dæmi að því sé haldið fram að smithættan sé meiri í líkamsrækt en sundi og að 16 ára unglingar megi ekki æfa nema þeir séu í meistaraflokki og þar fram eftir götunum. Mig langar að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort það komi ekki til greina að fylgja fordæmi stóru alþjóðlegu lyfjafyrirtækjanna sem hafa gengið fram með góðu fordæmi og opinberað rannsóknir sínar og lagt öll gögn á borðið. Kemur ekki til greina að opinbera allar upplýsingar er að lúta sóttvarnaaðgerðum og grundvöllum ákvarðana, þær upplýsingar sem liggja að baki fullyrðingum um að meiri smithætta sé t.d. í líkamsrækt en sundi, til að mynda upplýsingar um fjölda þeirra sem stunda þessa líkamsrækt? (Forseti hringir.) Kemur ekki til greina að opinbera allar þessar upplýsingar á einhverri heimasíðu þar sem allt er uppi á borðum, (Forseti hringir.) fundargerðir sóttvarnayfirvalda og önnur gögn sem renna stoðum undir þær fullyrðingar (Forseti hringir.) sem hafa verið hafðar uppi í tengslum við sóttvarnaaðgerðir?