151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs .

362. mál
[16:38]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Sá ánægjulegi atburður átti sér stað í hv. velferðarnefnd í gær og hjá stjórnarmeirihlutanum að þau sáu ljósið. Reyndar felldu þau tillögu mína um að launatengd gjöld færu inn í þetta mál um styrki til íþróttafélaga en höfðu vit á því að kalla málið inn í nefnd í millitíðinni til að breyta því þannig að launatengd gjöld fylgja nú styrkjum til íþróttafélaga. Þetta er auðvitað til bóta en hefði verið mun einfaldara bara að styðja tillögu mína í gær og þá væri þetta afgreitt núna.