151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fjáraukalög 2020.

337. mál
[18:38]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Í þessu fjáraukalagafrumvarpi er enn verið að bregðast við afleiðingum heimsfaraldursins á samfélagið. Hér greiðum við atkvæði um 65 milljarða kr. aukningu útgjalda. Þar vega þyngst útgjöld vegna aukins atvinnuleysis upp á tæplega 30 milljarða, og tekjufallsstyrkja upp á rúmlega 23 milljarða. Gerðar eru tillögur um að bæta aukinn rekstrarkostnað heilbrigðiskerfisins. Það eru önnur útgjaldatilefni sem dreifast á marga flokka og málefnasvið, m.a. til framhalds- og háskólakerfisins og mörg önnur framlög, m.a. til menningarstofnana og æskulýðsmála, sem ég tel að skipti gríðarlega miklu máli í því erfiða árferði sem við búum við.