151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fjáraukalög 2020.

337. mál
[18:39]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Árið 2019 komu hingað 867 hælisleitendur og var kostnaðurinn 3,5 milljarðar. Á þessu ári eru umsóknir færri en undanfarin ár, enda landið nánast lokað mánuðum saman. Fjárveiting til hælisleitenda á þessu ári er 3,2 milljarðar. Þann 1. desember voru umsóknir 618 og kostnaðurinn 2,5 milljarðar. Með réttu ætti því að vera afgangur á fjárveitingum til málaflokksins um rúman hálfan milljarð króna. Hér fer ríkisstjórnin hins vegar fram á 400 millj. kr. í viðbót. Fyrir þá upphæð má halda uppi rúmlega 1.000 flóttamönnum erlendis í eitt ár. Þessi aukafjárveiting sýnir það sem við í Miðflokknum höfum ávallt sagt, að þessi málaflokkur er í ólestri. Breytingartillagan gengur út á það að hækkun til málaflokksins komi ekki til framkvæmda, enda er hún óþörf.