151. löggjafarþing — 42. fundur, 18. des. 2020.
fjáraukalög 2020.
337. mál
Herra forseti. Til viðbótar þeirri málsástæðu sem hv. þm. Birgir Þórarinsson var að gera grein fyrir hér vil ég vekja athygli á þingsályktunartillögu Miðflokksins um aukna skilvirkni í málsmeðferð, en á hana hefur verulega skort. Aukin skilvirkni í málsmeðferð er fallin til þess að spara ríkissjóði umtalsverða fjármuni. Þess vegna teljum við að þau fjárútlát sem hér er fjallað um séu óþörf.