151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fjáraukalög 2020.

337. mál
[18:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um að leggja fjármuni í hjálparstofnanir sem gefa fólki mat, hjálparstofnanir sem hafa sagt að biðraðirnar fyrir jólin séu að lengjast. Í gær las ég grein eftir unga konu sem vinnur fulla vinnu, en fimmta hvers mánaðar á hún ekki fyrir mat þannig að án hjálparstofnana sagðist hún ekki vita hvernig hún færi að því að fæða börnin sín. Mér er algerlega fyrirmunað að skilja hvernig við getum sett með einu pennastriki 80 milljónir í ósjálfbæra atvinnugrein, eins og minkarækt. Það er ekkert mál að gefa minkum að borða fyrir 80 milljónir. Það er ekkert mál að setja 120 milljónir í loðnuleit fyrir fyrirtæki, en við vitum ekki einu sinni hvað er á bak við þessar 120 milljónir sem við erum að samþykkja núna hvað það varðar. Ég segi bara: Hvers vegna í veröldinni setjum við ekki fólkið okkar í fyrsta sæti? Erum við hjartalaus hérna? Hvernig getum við horft upp á langar raðir fólks að biðja um mat án þess að vera tilbúin að gefa því að borða?