151. löggjafarþing — 42. fundur,  18. des. 2020.

fjáraukalög 2020.

337. mál
[18:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Í þessu frumvarpi er ríkisstjórnin, með Sjálfstæðisflokkinn í fjármálaráðuneytinu, að setja enn eina ferðina meiri pening í Ríkisútvarpið. 5.000 milljónir árlega frá skattgreiðendum duga ekki þessari stofnun. Hún þarf líka að taka 2.000 milljónir til viðbótar á auglýsingamarkaði frá einkareknum fjölmiðlum. Síðan sækir RÚV enn meiri pening bakdyramegin úr ríkissjóði og fær endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar.

Herra forseti. Hvað er að gerast þarna uppi í Efstaleiti? Er fjármálastjórnin þarna í lagi? Og er þetta ekki að verða ágætt?

Miðflokkurinn leggur til að þessi 50 millj. kr. hækkun til Ríkisútvarpsins komi ekki til framkvæmda.