151. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:04]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum:

Frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurna á þskj. 588, um refaveiðar, þskj. 589, um loðdýrarækt, þskj. 592, um veiðar á fuglum á válista, þskj. 708, um hreindýraveiðar árið 2021, allar frá Ágústi Ólafi Ágústssyni; og vegna fyrirspurnar á þskj. 616, um losun gróðurhúsalofttegunda, frá Ásmundi Friðrikssyni.

Frá félags- og barnamálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 544, um fjölda lífeyrisþega sem fá skertar greiðslur vegna fyrri búsetu erlendis, frá Söru Elísu Þórðardóttur.

Frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 614, um viðveru herliðs, frá Andrési Inga Jónssyni; og fyrirspurnar á þskj. 719, um hlutfall starfs utan ráðuneytis vegna Covid-19 faraldursins, frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur.

Frá fjármála- og efnahagsráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 517, um innflutning á osti og kjöti, frá Þorsteini Sæmundssyni.

Frá mennta- og menningarmálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 629, um kynjahlutföll á skólaskrifstofum og við námsgagnagerð, frá Ólafi Ísleifssyni.