151. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2021.

forsendur við sölu Íslandsbanka.

[15:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég verð nú að segja að mér heyrist hv. þingmaður einmitt vera að tala um tímasetningar og ég hef heyrt hann nefna þær áður, þó ekki nákvæmlega í fyrri fyrirspurn sinni. Um þessi mál gilda algerlega skýr lög, mjög gagnsæ og skýr lög sem ég tók þátt í að setja í ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar, lög sem gilda um sölumeðferð á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Frumvarp til þeirra laga var lagt fram hér af hv. þm. Oddnýju Harðardóttur sem þá var fjármála- og efnahagsráðherra. Þar með var stofnuð Bankasýsla ríkisins sem fer með þennan eignarhlut ríkisins. Það þarf enginn að velkjast í vafa um hvernig þetta fer því að hún hefur lagt fram mjög skýra tillögu um hvernig hún sér fyrir sér að söluferlið fari.

Eins og ég kom að áðan er núna eingöngu verið að taka ákvörðun um að hefja söluferlið, ekki ákvörðun um endanlega sölu. Það ferli snýst um að kanna virði bankans á markaði og hvort tíminn núna sé heppilegur til að selja þennan hlut sem hefur miðast við fjórðungshlut. Fram kemur í gögnum Bankasýslunnar (Forseti hringir.) að það eru mjög margir þættir sem hafa áhrif á hver endanleg niðurstaða verður og hvort aðstæður eru metnar hagfelldar til að selja þennan hlut, þættir sem við getum ekki sagt fyrir fram hverjir (Forseti hringir.) verða nákvæmlega. Um það snýst sú vinna sem nú stendur yfir í þinginu. Ég hefði talið að þetta lægi algjörlega (Forseti hringir.) ljóst fyrir og væri raunar mjög gagnsætt eins og það er skilgreint í lögum frá 2012.