151. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2021.

úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar.

426. mál
[15:50]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um hvort leyfð skuli skýrslubeiðni um úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar. Líklega hefur sjaldan verið jafn rík þörf og nú til að hafa eftirlit með starfsemi og skilvirkni Vegagerðarinnar. Á síðasta ári komu upp nokkur tilvik þar sem slys urðu og tjón varð í kjölfar vegaframkvæmda á sama tíma og miklu fé hefur verið varið í samgönguframkvæmdir í tengslum við fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar í faraldrinum. Píratar og fjórir aðrir þingmenn, Andrés Ingi Jónsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hanna Katrín Friðriksson og Inga Sæland, fara því fram á að ríkisendurskoðandi geri úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar.

Í beiðninni eru tilgreindir nokkrir þættir sem lagt er til að fjallað verði sérstaklega um. Í fyrsta lagi að metnir verði þættir sem snúa að stjórnsýslu og stjórnun Vegagerðarinnar. Í öðru lagi þættir sem varða meðferð almannafjár og ráðstöfun til vegaframkvæmda. Í þriðja lagi þættir sem varða öryggi vegfarenda á þjóðvegum landsins (Forseti hringir.) og eftirlit með vegaframkvæmdum. Allt eru þetta veigamikil atriði sem ástæða er til að kanna nánar. (Forseti hringir.) Ég hvet þingheim til að samþykkja skýrslubeiðnina.