sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir góðar spurningar og þær eru fyllilega réttmætar. Við eigum að spyrja okkur að þessu: Skiptir tímasetningin máli? Þegar við leggjum það fram þannig að við séum að fara í gegnum dýpstu efnahagslægð í hundrað ár kann svarið að blasa við. Ef við hins vegar skoðum þetta aðeins betur blasti við í mars að tillaga Bankasýslunnar þá, í þeirri gríðarlegu óvissu og í raun og veru engri vitund um hvernig ætti að bregðast við, hvað við þyrftum að gera, hversu lengi þetta yrði o.s.frv., var ekki á heppilegum tíma. En ef við skoðum stöðuna akkúrat nú þegar hillir undir að við getum náð utan um vandann með bólusetningum, ef við skoðum þróun hlutabréfamarkaða sem í lágvaxtaumhverfi hafa allir, eins og komið hefur fram í umræðunni, hækkað og bankavísitölur erlendis líka, þá kann að vera að það séu ágætisaðstæður til að hefja þetta ferli núna. Það er alla vega ekki hægt að horfa fram hjá því.
Hitt vil ég líka segja að mér finnst þetta álagspróf sem bankarnir hafa staðist mjög athyglisvert. Ég segi álagspróf en í raun og veru á það við um það regluverk sem þingið hefur unnið að í áratug. Það tengist seinni hluta spurningarinnar. Bankarnir sýna feikilegan viðnámsþrótt með sterka lausafjárstöðu, há eiginfjárhlutföll og mikla getu til að mæta þessu og mæta því líka þrátt fyrir að, (Forseti hringir.) eins og í tilviki Íslandsbanka, 10% af lánabókinni séu í frystingu. (Forseti hringir.) Einhver fjárfestir kann að segja: Þegar bólusetningin fer að virka og viðspyrnan hefst þá eru það framleiðslutækin í ferðaþjónustunni (Forseti hringir.) sem koma okkur af stað að nýju og þá hækkar þetta enn frekar. Ég bara veit það ekki.