151. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2021.

störf þingsins.

[14:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Herra forseti. Þann 5. janúar hríslaðist gleði um kynsegin samfélagið. Henni deildum við sem stöndum með þeim hópi þegar uppskera áralangrar baráttu birtist á ofureinfaldan hátt. „Kynsegin/annað“ varð valmöguleiki í fellivalmynd hjá þjóðskrá. Á sama tíma kom flatt upp á fólk sem breytti skráningu að fyrir það þurfti að greiða 9.000 kr. í gjald til þjóðskrár. Það kom flatt upp á þann sem hér stendur en við nánari eftirgrennslan leyndist, nánast neðanmáls, í 4. tölulið 18. gr. laga um kynrænt sjálfræði, breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs sem hafði þessar afleiðingar. Ég ætla að fullyrða hér að það hafi ekki verið ætlun okkar að koma á sérstökum trans skatti um leið og við náðum þessari réttarbót fram. Bæði er ekki sjálfsagt að trans fólk hafi efni á að borga slíkt gjald en þar að auki þjónar það ekki almannahagsmunum að vera með fjárhagslegan þröskuld fyrir því að nafn og kyn sé rétt í þjóðskrá. Sérstakur trans skattur er ósanngjarn og óréttlátur. Hann varpar skugga á þá stórkostlegu réttarbót sem felst í lögum um kynrænt sjálfræði. Þingið þarf að viðurkenna að þarna varð okkur á í messunni, leiðrétta mistökin og afnema trans skattinn strax.