fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Við erum að fjalla um stuðning við einkarekna fjölmiðla, frumvarp mennta- og menningarmálaráðherra. Ég verð að segja alveg eins og er að ég get fundið þessu frumvarpi mestallt til bölvunar, það er eiginlega stórfurðulegt. Eins og kom fram hjá hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni fara 70% af þessari upphæð, 400 milljónum, til stærstu fjölmiðlanna en 30% til þeirra minni. Eins og vanalega fá þeir sem síst þurfa hjálpina stærstu sneiðina af kökunni en þeir sem mest þurfa fá minnst.
Við erum að byrja á röngum enda. Við gleymum því að við eigum að byrja á réttum stað. Við eigum að byrja á stóra bleika fílnum í herberginu, RÚV. Við gerum okkur ekki, held ég, grein fyrir því að við setjum 5 milljarða á ári beint til RÚV og við verðum bara að gjöra svo vel að borga það hvort sem okkur líkar betur eða verr, auk þess sem RÚV fær 2 milljarða í viðbót í auglýsingatekjur. Það eru gífurlegir fjármunir. Ef við setjum það í eitthvert samhengi þá erum við að tala um á tíu árum heilt þjóðarsjúkrahús eða ef við værum að byggja félagslegar íbúðir þá gætum við byggt yfir 200 slíkar á ári fyrir þennan pening. Ég spyr: Hvers vegna í ósköpunum? Og hver er tilgangurinn með því að ríkið sé með svona risavaxinn fjölmiðil? Hann þenst út þótt tækni fleygi gífurlega mikið fram, í dag er ekki næstum því sama umhverfi til að stofna fjölmiðil og var áður fyrr og fjölmiðlaumhverfið breytist sífellt. Við vitum að unga fólkið okkar horfir yfirleitt ekki á sjónvarp í línulegri dagskrá. Samskipti þess og sjónvarpsáhorf er í gegnum netið. Sem betur fer eru margir sem hafa hugmyndir og geta rekið fjölmiðla í gegnum netið og hafa getað gert það. En þeir þurfa samt að reyna það í beinni samkeppni við þennan stóra fíl, RÚV.
Til að gera hlutina rétt þá verðum við að minnka Ríkisútvarpið. RÚV þarf ekki að vera það bákn sem það er í dag, það þarf bara að vera ein sjónvarpsrás, ein útvarpsstöð. RÚV þarf ekki að velta 7 milljörðum á ári. Það er alger óþarfi vegna þess að Ríkisútvarpið á að einbeita sér að því sem það ætti að gera, þ.e. að stuðla að menningu í landinu. RÚV þarf ekki að vera að berjast við einkarekna fjölmiðla um bandarískt eða evrópskt afþreyingarefni. Það er nóg af öðrum miðlum sem sjá um það, enda í sjálfu sér eiginlega vonlaus barátta eins og staðan er í dag. Við vitum að við erum með erlenda fjölmiðla eins og Netflix og fleiri sem eru að veita þjónustu fyrir brotabrot, bara smáaura, af því sem RÚV gerir. Þeir fjármunir fara til útlanda vegna þess að þorri fólks hefur efni á því að kaupa aðgang að því en ekki hinum fjölmiðlunum, fyrir utan það að RÚV hefur alltaf það forskot að vera hjá ríkinu og fær sína 5 milljarða, alveg sama hvað á dynur.
Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir 400 milljónum sem verða sennilega árleg framlög og munu jafnvel hækka. Ég óttast að þetta fari eins og með styrki til stjórnmálaflokka. Þeir byrja smátt en síðan aukast þeir og verða alltaf meiri og meiri. Við gleymum því að við erum að taka fé frá almenningi og við spyrjum almenning aldrei hvort hann sé sáttur við að fjármunum hans sé varið á þann hátt. Einhver segir kannski að 400 milljónir séu ekki rosalega mikið í öllu samhengi ríkisfjármálanna en ég óttast að það sé bara byrjunin. Ég myndi frekar sjá til þess að það yrði þá byrjað á að skilgreina hverjir þurfi á þessum peningum að halda. Þarf einkarekinn fjölmiðill sem auðmaður stendur á bak við að fá styrk frá ríkinu? Við höfum heyrt það aftur og aftur um öryrkja að þeir séu byrði á samfélaginu af því að þeir fá bætur frá ríkinu. Það er veikt fólk sem okkur ber skylda til að hjálpa. Fjölmiðill sem auðmaður stendur á bak við er ekki veikur, hann þarf ekki ríkisaðstoð á nokkurn hátt. Þess vegna er alveg með ólíkindum að á sama tíma og við erum að samþykkja þetta, 400 milljónir til fjölmiðla, neitum við fyrir áramót að auka framlög til mataraðstoðar. Innan við 10% af því sem við leggjum til fjölmiðla gætum við notað til að hjálpa þeim sem þurfa að standa í röð eftir því að fá mat, sem er auðvitað eitt af því ömurlegasta líka, auðvitað eigum við að vera orðin þróaðri og komin lengra en svo að við sjáum fólk standa í röðum og bíða eftir mat, ekki bara fullorðið fólk heldur líka börn.
Nei, erum ekki búin að redda því en við erum búin að ákveða að nú eigum við að hjálpa veslings fjölmiðlunum, þeir hafi það svo bágt. Hvernig í ósköpunum getum við sett hlutina svona frá okkur? Einhver tekur ákvörðun um að búa til fjölmiðil og ákvörðun um að berjast á fjölmiðlamarkaði og jú, tekjurnar hafa dregist saman núna í Covid. En hvað gerum við þá? Jú, við aukum enn framlögin. Þessar 400 milljónir eru sennilega nálægt því sem var aukið til RÚV út af kófinu, út af töpuðum auglýsingatekjum. Allir sjá að það er algjört rugl að ríkið skuli vera í þeirri aðstöðu að auka framlögin. Á sama tíma og gerðar eru kröfur um aðhald, og skuldir ríkissjóðs hafa hækkað um 300 milljarða á þessu ári og fara í 600 milljarða á tveimur árum, dettur okkur í hug að til séu peningar fyrir fjölmiðla. Við erum vissulega að aðstoða fyrirtæki og með alls konar styrki í gangi vegna faraldursins en ef við ætlum okkur á annað borð að fara að styrkja einhverja þá eigum við að einbeita okkur að þeim sem standa verst. Hverjir standa verst í baráttunni við risana? Jú, það eru litlir fjölmiðlar, landsbyggðarfjölmiðlar, landsbyggðarblöðin.
Bent er á það í frumvarpinu að Ísland sé eina landið sem styrkir ekki fjölmiðla. Það er bara flott. Hvar ætlum við að hætta ef við byrjum? Eigum við að styrkja matvörubúð úti á landi því að hún stendur ekki undir sér? Við höfum orðið vör við að verið er að loka matvöruverslunum og fólk þarf að fara langar leiðir til að kaupa í matinn. Er ekki nær að styrkja það, er það ekki þá næsta skref? Ef við styrkjum það, hvað eigum við þá að styrkja næst? En eins og ég segi, ég myndi frekar telja þörf á að styrkja litlu fjölmiðlana en nokkurn tímann nokkuð annað. Við verðum líka að átta okkur á því að orðið hefur, eins og ég sagði áður, gjörbreyting á umhverfi fjölmiðla. Sá sem vill stofna fjölmiðil getur gert þetta allt sjálfur með einni tölvu. Það þarf nú ekki meiri búnað en það. Við höfum séð aðila reyna af veikum mætti að berjast og reyna að koma sínum sjónarhornum að í gegnum litla fjölmiðla. En baráttan hlýtur að vera, eins og við höfum oft heyrt, Davíð að berjast við Golíat. Davíð vann á sínum tíma í sögunni en í raunveruleikanum er það ekki svoleiðis. Yfirleitt vinnur Golíat því að risarnir hafa öll spjótin í hendi. Þeir hafa fjármagnið, þeir hafa ríkið á bak við sig.
Hvers vegna vill ríkið vera með fjölmiðil? Er það til að hafa aðhald, þannig að einhver fjölmiðill standi með ríkisstjórn hvers tíma? Það er góð spurning í sjálfu sér. Jú, ég mun segja það, ég hef orðið vitni að því. Ríkisútvarpið stendur með ríkisstjórninni í ákveðnum málum. Kannski er það allt í lagi. Kannski er það ástæðan fyrir því að við erum með risaríkisfjölmiðil, hann á að vera mótvægi við hina fjölmiðlana sem eru reknir af auðmönnum sem hafa annarra hagsmuna að gæta, hagsmuna 1% þjóðarinnar sem á allan auðinn.
Við erum á þeim tímapunkti nú að við eigum að fara að ákveða hvort við ætlum að byrja þessa vegferð. Ég óttast að um leið og við byrjum hana munum við ekki hætta, að þetta verði bolti sem vindur upp á sig. Eins og hefur komið fram eiga 70% fjármagnsins að fara til stærstu fjölmiðlanna. Það er ekki ásættanlegt, það er einfaldlega vitlaust gefið. Við erum þá að hampa þeim sem síst þyrftu og í sjálfu sér á ekki að aðstoða þá sem mest hafa. Þarna inni eru líka mjög strangar reglur og við vitum að nú er fullt af fjölmiðlum, litlum fjölmiðlum úti á landi, sem berjast í bökkum og eru komnir í ákveðnar erfiðar aðstæður. Þeir eiga sér ekki viðreisnar von vegna þess að ef þeir skulda einhver opinber gjöld þá eru ýmsar hindranir settar til að þeir geti ekki nýtt sér þetta. Ég óttast að einungis hinir fjársterku muni virkilega geta nýtt sér þetta. Ég get ekki ímyndað mér að það sé tilgangurinn með þessu.
Ég vildi gera þetta eins og Finnar, þeir virðast hafa fundið gullna meðalveginn í þessu. Að vísu er í þessu frumvarpi verið að biðja um að þetta verði eins og annars staðar á Norðurlöndunum. Ég vona að svo fari ekki vegna þess að þar er verið að styrkja tungumál og minnihlutahópa og þar eru nýsköpunarstyrkir og eins og segir hér, með leyfi forseta:
„Markmið styrkveitinganna er að aðstoða fjölmiðla við uppbyggingu á starfsemi sinni, m.a. með nýjum miðlunarleiðum. Þessir styrkir eru veittir án tillits til hvernig efni er miðlað og er ætlað að þróa nýja þjónustu, lausnir og framleiðsluaðferðir fjölmiðla þar í landi.“
Ef við værum að gera það þá værum við, held ég, sennilega á betri leið en nokkurn tímann með því að byrja á að henda 400 milljónum í fjölmiðla og síðan koll af kolli með auknu fjármagni næstu ár og áratugi.