151. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2021.

fjölmiðlar.

367. mál
[15:26]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Eins og komið hefur fram er markmið þessa frumvarps að efla einkarekna fjölmiðla til að gera þeim betur kleift að sinna sínu hlutverki. Þá er nauðsynlegt að skoða aðeins hvert hlutverk fjölmiðla er og hvernig þeir hafa sinnt þessu hlutverki sínu, sem er mjög mikilvægt, sérstaklega á þeim tímum sem við lifum í dag þegar við sjáum t.d. alls konar falsfréttir sem hafa aukist og í sumum tilfellum hvernig eigendur fjölmiðlafyrirtækja hafa ekki nýtt þau með nægilega skynsamlegum hætti. Það hefur gjarnan verið talið að fjölmiðlar séu hið fjórða vald sem bætist í hóp þriggja stoða ríkisvaldsins. Hlutverk þeirra er m.a. að miðla upplýsingum og skoðunum til almennings. Þar af leiðandi hafa þeir gífurleg áhrif á viðhorf fólks og því er nauðsynlegt að ritstjórar hafi frelsi að stýra fjölmiðlum sínum faglega án þess að fréttir og umfjöllunarefni þeirra verði fyrir áhrifum og þrýstingi frá eigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Það er þó algeng skoðun að erfitt sé að halda uppi alfarið óháðum fjölmiðli þar sem það sé óhjákvæmilegt að þeir verði fyrir áhrifum einhvers, hvort sem það eru eigendur, auglýsendur eða skoðanir blaðamannanna sjálfra.

Fjölmiðlar hafa einnig það mikilvæga hlutverk að endurspegla fjölbreytt samfélag og fjölbreyttur fjölmiðlamarkaður tryggir stjórnmálalega og menningarlega fjölbreytni ásamt því að gefa ríkisborgurum tækifæri til að taka þátt í lýðræðislegum ákvörðunum. Það er mikilvægt að framboð fjölmiðla sé fjölbreytt til þess að koma að sem flestum sjónarhornum. Það á jafnt við í fréttamennsku sem öðru. Jafnframt þarf að gæta að fjölræði á fjölmiðlamarkaði til þess að fjölmiðlar séu ekki undir handbendi fárra einstaklinga.

Ýmsar kenningar hafa lagt grunn að hugmyndum um það mikla vald sem fjölmiðlar hafa, þar á meðal kenningin um hið svokallað dagskrárvald. Það er vald sem fjölmiðlar hafa til að draga upp ákveðna mynd af veruleikanum. Þeir hafa vald til að velja hvaða fréttir skulu sagðar og hvernig þær eru sagðar sem hefur óhjákvæmilega áhrif á hvernig skoðanir áhorfenda mótast. Fjölmiðlar búa því yfir miklu valdi, ég held að allir átti sig á því. Þeir hafa það vald að draga upp ákveðna mynd af veruleika dagsins og hafa áhrif á þær skoðanir sem við myndum okkur, hvaða fréttir eru valdar til umfjöllunar, og hvernig þær eru sagðar skiptir síður en svo litlu máli. Það eru ýmsir áhrifaþættir, bæði innan og utan fjölmiðlanna sem spila inn í það hvernig fréttir eru valdar og unnar og þegar kemur að því að velja fréttir gera fréttamenn sér ekki endilega grein fyrir því sjálfir hvað það er sem ræður í raun för, heldur tala frétta- og blaðamenn gjarnan um það eins og það séu í raun og veru ekki þeir sem velji fréttirnar heldur velji þær sig sjálfar. Þá er ekki hægt að neita því að eignarhald fjölmiðla og ýmis hagsmunatengsl geta haft sitt að segja um það hvernig unnið er úr fréttunum.

Það er skoðun erlendra fræðimanna á sviði fjölmiðlunar að það sé óhjákvæmilegt fyrir fjölmiðla að verða fyrir áhrifum og þrýstingi úr ólíkum áttum og í því samhengi er rætt um fimm megináhrifavalda á fjölmiðla. Það eru eigendur fjölmiðilsins, auglýsendur, áreiðanlegir heimildarmenn, athugasemdir hagsmunahópa og ríkjandi hugmyndafræði. Ein afleiðing samþjöppunar á fjölmiðlamarkaði er að til verða stórar og miklar fjölmiðlasamsteypur og þar af leiðandi eru eigendur slíkra fyrirtækja oftar en ekki í annars konar viðskiptarekstri og eiga því hagsmuna að gæta á öðrum mörkuðum sem getur haft áhrif á fréttaflutning viðkomandi fjölmiðils. Auglýsendur geta einnig haft töluverð áhrif á umfjallanir og fréttamat þar sem rekstrarkostnaður fjölmiðla er að miklu leyti greiddur af auglýsingum. Þá er hætt við að ritstjórnarlegt frelsi fjölmiðla þurfi að víkja fyrir hagsmunum auglýsenda.

Fjölmiðlar fengu á sig verulegan skell í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Það er algeng skoðun að þeir hafi í raun brugðist eftirlits- og upplýsingahlutverki sínu í aðdraganda efnahagshrunsins. Margt fróðlegt er að finna um ástand fjölmiðlamarkaðarins í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna. Fjölmiðlar fengu á sig ákveðinn áfellisdóm fyrir að hafa ekki verið nægjanlega á varðbergi og sinnt upplýsingaskyldu sinni í aðdraganda bankahrunsins. Það má m.a. rekja til þess hve samþjappaður fjölmiðlamarkaðurinn var orðinn og mikil tengsl á milli blaðamanna og viðskiptalífsins. Í skýrslunni er það ályktun rannsóknarnefndarinnar að íslenskir fjölmiðlar hafi ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi í aðdraganda hrunsins. Fjölmiðlarnir tryggðu ekki nógu vel sjálfstæði sitt og voru þar af leiðandi ekki nógu vakandi fyrir mögulegum viðvörunarmerkjum. Flestir miðlarnir voru í eigu sömu aðila og áttu helstu fjármálafyrirtækin. Þótt ekki hafi verið sýnt fram á bein áhrif eiganda á fréttaflutning virtist sjálfsritskoðun vera útbreidd í íslensku samfélagi, m.a. vegna þess hve atvinnutækifæri fjölmiðlamanna eru takmörkuð. Jafnframt kemur nefndin fram með þann lærdóm sem draga má af þessu. Meðal þess sem nefnt er er mikilvægi þess að setja einkaaðilum hóflegar takmarkanir á eignarhaldi fjölmiðla. Einnig þarf að efla sjálfstæði ritstjórna og gæta þess að algjört gegnsæi á fjölmiðlamarkaðnum ríki svo ekki sé hægt að fela það hverjir eru raunverulegir eigendur fjölmiðlanna. Það gerir fólki kleift að leggja sjálft mat á hvort gætt sé hlutleysis í fréttaflutningi eða fylgja skoðunum eigandans. Fréttamenn sjálfir hafa í ræðu og riti á liðnum árum komið því á framfæri að þeir hafi orðið fyrir óeðlilegri ritskoðun eiganda þess fjölmiðils sem þeir störfuðu hjá og að eigendur geti spillt ritstjórnarlegu sjálfstæði fjölmiðla.

Herra forseti. Það má segja að þetta sé svolítill inngangur að því sem ég ætla að leggja megináherslu á í málflutningi mínum. Það er eðlilegt að velta því fyrir sér hvort styrkjafyrirkomulagið sem hér á að fara að innleiða geri fjölmiðla háða stjórnvöldum og skapi óheilbrigt ástand. Maður spyr sig hvort ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og fréttamanna geti orðið fyrir óeðlilegum áhrifum. Sú spurning er ákaflega mikilvæg þegar við ræðum þetta frumvarp.

Ég er á þeirri skoðun að það sé einnig mjög mikilvægt að skoða skattumhverfið og koma böndum á erlendar veitur og aðgengi auglýsenda að þeim. Stærstu risarnir á markaðnum eru samfélagsmiðlar. Samkeppni innlendra fjölmiðla við erlendar efnisveitur fer ört vaxandi. Síðan má ekki gleyma risanum á auglýsingamarkaðnum, Ríkisútvarpinu, sem fær 5.000 millj. kr. á ári úr ríkissjóði og sópar svo upp auglýsingamarkaðnum til viðbótar.

Ef við skoðum aðeins hin Norðurlöndin þá er hin almenna stefna víðast hvar sú að halda almannaútvarpsstöðvunum sem eru á vegum hins opinbera utan við samkeppni á auglýsingamarkaði á sama tíma og þær keppa við einkareknar stöðvar um áhorfendur og hlustendur. Þannig er norska ríkisútvarpið nánast algerlega án auglýsinga. Minni tekjur og umfangsmikill niðurskurður á fréttastofum og ritstjórnum kemur í veg fyrir að stjórnendur hafi þær bjargir sem þarf til að skila til almennings raunverulegri fjölbreytni í fjölmiðlaefni. Í Noregi var fyrir ekki svo löngu síðan sett á laggirnar nefnd sem skoðaði fjölmiðlaumhverfið þar. Nefndin taldi að mikil hætta væri á því að sú blaðamennska sem er nauðsynleg fyrir opinbera umræðu gæti beinlínis horfið áður en tækist að finna sjálfbært rekstrarmódel fyrir fjölmiðla.

Við sjáum það núna að mjög brýnt er að fara að finna lausn á þessu. Þess vegna er tillaga okkar í Miðflokknum um ráðstöfun útvarpsgjaldsins mjög góð. Hún er einföld í framkvæmd og í raun og veru óumdeild. Tillagan gengur út á það að einstaklingur geti ráðstafað gjaldinu sjálfur, þó aðeins að hluta. Og þetta er hófleg tillaga. Þá fer sá hluti beint til viðkomandi fjölmiðils. Þetta er skynsamleg breyting vegna þess að hún gerir hverjum og einum greiðanda útvarpsgjaldsins heimilt að ráðstafa því, allt að þriðjungi, til annarra fjölmiðla en Ríkisútvarpsins. Í dag er það þannig að allt gjaldið rennur til Ríkisútvarpsins og greiðandinn hefur ekkert val um hvert þessir fjármunir fara. Það er vægast sagt sérstakt vegna þess að maður hefði talið að það væri lýðræðislega eðlilegt að fá að ráðstafa þessu gjaldi til annarra fjölmiðla.

Ríkisstjórnin hefur reynt að koma áfram þessu máli sem við ræðum hér í dag til að reyna að styrkja fjölmiðla. Það hefur gengið brösuglega og hefur mikill ágreiningur verið innan ríkisstjórnarflokkanna um það. Á meðan hefur dýrmætur tími tapast. Þess vegna er mjög mikilvægt að koma með einfalda lausn sem við Miðflokksmenn höfum gert og gagnast öllum fjölmiðlum alveg örugglega.

Það er fróðlegt, herra forseti, að skoða niðurstöðu þessarar nefndar í Noregi sem skilaði tillögu um hvernig bregðast ætti við fjölmiðlamarkaðnum þar. Í Noregi er ríkur skilningur á lýðræðishlutverki fjölmiðla og þar hafa háar fjárhæðir farið úr sameiginlegum sjóðum um árabil til að styrkja fjölbreytni og fjölræði í norskum fjölmiðlum. Einnig er bent á að ekki sé um annað að ræða á meðan efnahagslegar undirstöður fjölmiðla breytast ekki til hins betra, en að halda áfram myndarlega á þeirri braut. Þetta er hið norska módel. Norðmenn vilja kosta talsverðu til svo raunveruleg lýðræðisleg umræða geti þrifist.

Í grundvallaratriðum er hugmyndafræðin í þessu nýja frumvarpi sú sama og í fyrri frumvörpum, þ.e. endurgreiddur er kostnaður vegna launa og verktakavinnu blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna, ljósmyndara og prófarkalesara. Endurgreiðslurétturinn nemur 25% af þessum kostnaði og er ekkert hámark sett á hugsanlega endurgreiðslu. Þess í stað er kveðið á um að fari samanlögð endurgreiðsluupphæð til allra þeirra sem rétt eiga, samkvæmt ákvörðun þriggja manna úthlutunarnefndar, upp fyrir það sem fjárheimildir eru fyrir, skerðist útgreiðsla til allra umsækjenda í réttum hlutföllum. Augljóst er að þetta þýðir að stærstu fyrirtækin munu hreppa bróðurpartinn af styrkjunum líkt og var í úthlutuninni vegna kórónuveirufaraldursins. Þá fengu Árvakur, Sýn og Torg, sem flesta hafa í vinnu, langhæstu upphæðirnar. Stóru fjölmiðlafyrirtækin munu fá mest úr þeim potti sem til ráðstöfunar verður og hlutfallslega í samræmi við stærð sína. Skilyrði fyrir styrk eru einfölduð þannig að ekki er lengur gerð krafa um útgáfutíðni eða tegund miðils, einungis að miðillinn skuli vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar. Auk þess skilyrðis eru ýmis tæknileg skilyrði um að staðið hafi verið við skýrslugjöf og skil á opinberum gjöldum og þess háttar, sem eru að sjálfsögðu eðlileg skilyrði.

Herra forseti. Að lokum vil ég segja að það er ákaflega mikilvægt í þeirri vinnu sem fram undan er innan nefndarinnar að hlustað verði á sjónarmið minni fjölmiðlafyrirtækja og þá gagnrýni sem fram hefur komið á frumvarpið þannig að þegar vinnunni er lokið náist sem breiðust sátt um þetta mál. Það skiptir að sjálfsögðu verulegu máli og einnig fyrir lýðræðislega umræðu í okkar ágæta samfélagi á tímum þar sem þessi mikilvæga atvinnugrein er í verulegum vandræðum og ekki verður séð að breytingar verði á því í náinni framtíð.