fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Mig langar við þessa umræðu um frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla að koma inn á nokkur atriði. Ég ætla fyrst að fyrst að fara stuttlega í frumvarpið sjálft. Síðan ætla ég að fjalla almennt um stöðuna á þessum markaði, svo um tillögur okkar þingmanna Miðflokksins sem miða að því að styrkja stöðu einkarekinna miðla og efni framleiðenda og í lokin að reyna að hnýta þetta saman og horfa til þess hvernig ég teldi skynsamlegt að hv. allsherjar- og menntamálanefnd héldi á þessari vinnu.
Frumvarpið liggur fyrir og er með svipuðu sniði og þegar það var lagt fram fyrir ári síðan. Það sem mig langar að nefna í þessu er að þetta ber allt keim af enn einni stofnanavæðingunni. Samkvæmt b-lið 2. gr. frumvarpsins verður sett á laggirnar úthlutunarnefnd, eins og þar segir, með leyfi forseta:
„Ráðherra skipar þriggja manna úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Nefndarmenn skulu tilnefndir af ríkisendurskoðanda og skal einn uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara, einn vera löggiltur endurskoðandi og sá þriðji hafi sérþekkingu á fjölmiðlum eða fjölmiðlarétti.“
Þessi nálgun finnst mér öll benda til þess að þetta sé verkefni sem væri allt eins hægt að afgreiða og vinna með einfaldri aðgerð á skrifborði hjá Skattinum. Ég er efins um að það sé skynsamlegt að forma nýja opinbera nefnd sem mun hafa yfir sér áru eftirlits, ég ætla ekki að segja ritskoðunar, ég vil alls ekki að nota það hugtak, en engu að síður íhlutunar stjórnvaldsins í þessu tilfelli, í staðinn fyrir að hafa reglurnar einfaldar og gegnsæjar og hafa þá mögulega afgreiðsluna í gegnum Skattinn. Það er auðvitað þannig að þeir einir njóta styrkja samkvæmt þessu regluverki sem falla undir eftirlitshluta fjölmiðlanefndar. Svo er það annað mál út af fyrir sig hvort skynsamlegt sé að sú nefnd verði eilíf.
Ég held að við ættum að skoða það sérstaklega hvort ekki sé hægt að leita einfaldari aðferðar til að ná fram þessu markmiði, ef þetta verður leiðin sem verður farin. Í því sambandi er kannski rétt að nefna og minna á að miklar efasemdir komu upp hjá sérstaklega tilteknum hópi stjórnarþingmanna þegar mælt var fyrir málinu hér á síðasta þingi. Það vekur athygli mína, það gæti auðvitað breyst áður en umræðunni er lokið, að hér er enginn þingmaður frá Sjálfstæðisflokknum á mælendaskrá. Þá fer mann að gruna að búið sé að lempa þetta og semja um það á þann veg milli ríkisstjórnarflokkanna að málið verði klárað í þessum búningi og þá verða þeir auðvitað bara kyngja sem þurfa að kyngja í því samhengi. Minnir þetta kannski á umræðu hér fyrir nokkrum dögum síðan að ríkisstjórnarflokkarnir væru búnir að ná einhvers lags samkomulagi um þau stóru mál sem þyrfti að klára. Þar hafa verið nefnd stjórnarskrármálið, hálendisþjóðgarðurinn og sala Íslandsbanka og ætli Framsóknarflokkurinn fái þá ekki þetta fjölmiðlafrumvarp í þeim pakka. Það væri ánægjulegt að sjá þingmenn hér, sérstaklega þá sem mest hafa haft sig í frammi í þessum efnum og talað býsna skynsamlega á fyrri stigum — það er kannski það sem er svo svekkjandi í augnablikinu, að sjá að á mælendaskrá sé enginn þeirra sem mest hefur haft sig í frammi og talað skynsamlega. Það er nú oft þannig að þeir sem hafa sig mest í frammi tala kannski ekki af mestri þekkingu eða skilningi um málin, en er ekki svo í tilviki þessara þingmanna, og vil ég þá sérstaklega nefna hv. þm. Óla Björn Kárason, ég hefði gjarnan viljað heyra hver afstaða hans er til þessa máls eins og það liggur fyrir núna.
En aftur að frumvarpinu. Ég geri athugasemdir við þessa stofnanavæðingu með úthlutunarnefndinni. Þriðji aðilinn á að hafa sérþekkingu á fjölmiðlum eða fjölmiðlarétti þannig að það er minni hluti þessa hóps sem gerð er krafa um að hafi þekkingu eða skilning á fjölmiðlun yfir höfuð, þannig að ég held að það hljóti að vera hægt að fara minna stofnanavædda leið að þessu marki.
Annað atriði langar mig til að nefna þar sem oft er talað um að nýsköpun og aðgengi nýrra aðila að markaði og þess háttar sé mikilvægt markmið í sjálfu sér. Í 2. tölulið d-liðar 2. gr. er farið yfir skilyrði fyrir rekstrarstuðningi og þar segir, með leyfi forseta:
„Fjölmiðill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar samkvæmt IV. kafla. Fjölmiðill skal jafnframt hafa starfað með leyfi frá fjölmiðlanefnd óslitið í 12 mánuði eða lengur.“
Það geta auðvitað verið málefnaleg sjónarmið fyrir svona tímalengd. Síðan segir hér skömmu síðar, með leyfi forseta:
„Berist umsókn um rekstrarstuðning vegna næstliðins árs eftir 31. mars, skal vísa henni frá.“
Samkvæmt þessu á því fjölmiðill sem stofnaður er 1. apríl, segjum bara 1. apríl í ár, ekki möguleika á stuðningi fyrr en árið 2023, sem sagt rúmu einu og hálfu ári eftir að hann er stofnaður þar sem hann hefur ekki starfað óslitið í 12 mánuði þegar kemur að 31. mars næsta árs. Þar með fellur sá tiltekni nýi fjölmiðill út um heilt ár sem mögulegur styrkþegi. Þetta held ég að nefndin þurfi að skoða sérstaklega.
Mér finnst auðvitað vera til bóta, miðað við fyrstu framlagningu málsins fyrir ári síðan, að hér getur stuðningur til hvers umsækjanda orðið allt að 25% af fjárveitingum til verkefnisins. Það var lægra viðmiðunarhlutfall. Ef ég man rétt er þetta tvöföldun á því þaki sem ég held að sé nauðsynlegt því að burðugustu ritstjórnirnar bera afgerandi kostnað af fréttaöflun og -vinnslu á þessum markaði okkar.
Nokkur orð um tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar í greinargerð. Mér þykir hreinlega alveg magnað að hægt sé að skrifa greinargerð með frumvarpinu þar sem tekst að skauta algjörlega fram hjá hlutverki eða áhrifum Ríkisútvarpsins á þessum markaði. Það segir í kaflanum um tilefni og nauðsyn lagasetningar, með leyfi forseta:
„Síðustu ár hafa rekstrarforsendur einkarekinna fjölmiðla hér á landi versnað til muna. Margar ástæður eru fyrir þeirri þróun, svo sem örar tæknibreytingar og minnkandi auglýsingatekjur fjölmiðla samhliða breyttri neysluhegðun fyrirtækja á markaði. Þá hefur samkeppni innlendra fjölmiðla við erlendar efnisveitur farið vaxandi síðustu ár vegna fjölbreyttari miðlunaraðferða. Kaup á auglýsingum færast í auknum mæli til erlendra stórfyrirtækja, svo sem net- og samfélagsmiðla, sem leitt hefur til samdráttar í auglýsingasölu hjá hinum hefðbundnu einkareknu fjölmiðlum.“
Það er sérstakt afrek að komast í gegnum þennan kafla án þess að nefna einu orði stöðu Ríkisútvarpsins á þessum markaði. Þeir sem hlusta eitthvað eftir þeim sjónarmiðum sem einkareknir fjölmiðlar setja fram í þessum efnum hljóta að átta sig á því að fíllinn í stofunni, ef svo má segja, er Ríkisútvarpið á þessum markaði öllum. Það hefur yfirburðastöðu vegna útvarpsgjaldsins í fyrsta lagi og þeirra rétt um 5 milljarða á ári sem stofnunin fær í gegnum það, og eins þegar stofnunin ryksugar upp auglýsingamarkaðinn, eins og það er stundum orðað, og sækir sér hátt í 2 milljarða þar til viðbótar. Þetta er atriði sem mér finnst að hv. allsherjar- og menntamálanefnd verði að koma sérstaklega inn á í tengslum við vinnslu þessa máls, að aðgerðir er snúa að stöðu Ríkisútvarpsins á markaði verði tengdar þessu máli. Mér þykir ekki boðlegt að afgreiða þetta mál eins og það liggur fyrir og ætla síðan að fara að spekúlera í því hvort taka eigi Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði eða þrengja að auglýsingabirtingum eða hver svo sem leiðin yrði. Það verður að skoða þetta í samhengi og heildstætt því að svona bútasaumur kann ekki góðri lukku að stýra.
Ég ætla ekki að fara meira í atriði frumvarpsins í ræðu minni en skil þetta eftir hér og óska eftir því að allsherjar- og menntamálanefnd fjalli um þessi atriði í meðferð sinni.
Mig langar til að koma stuttlega inn á tillögu sem við þingmenn Miðflokksins höfum lagt fram, sem er að okkar mati hluti af því að leysa vandamálið sem snýr að þessari yfirburðastöðu Ríkisútvarpsins á markaði, sem er auðvitað alltumlykjandi mál þegar við ætlum að ræða um stöðu einkareknu miðlanna af einhverju viti. Tillaga okkar í Miðflokknum gengur út á það í stuttu máli að gjaldendum útvarpsgjaldsins, sem sagt skattgreiðendum, verði heimilað að ráðstafa þriðjungi útvarpsgjaldsins á hverju ári til þess miðils sem viðkomandi kýs. Með þessu held ég að við sæjum fram á bæði hvata til framleiðslu efnis, gæða þess og að hver miðill passaði upp á kúnnahópinn sinn, ef svo má segja, þá sem fylgjast með og lesa og horfa á það efni sem þar er framleitt. Þarna væri líka komin beintenging við það hvað almenningur vill raunverulega í þessum efnum. Þarna gæti komið verulegur stuðningur við einkareknu ritstjórnirnar og ég held að þær útgáfur, þeir fjölmiðlar sem væru líklegir til að njóta hlutfallslega mest í þessum efnum, séu héraðsfréttamiðlarnir, sem sinna staðbundnum fréttum og nærumhverfinu. Þeir eiga alveg örugglega hauk í horni og það marga í nærumhverfi sínu sem vilja styðja við viðkomandi í útgáfustarfsemi með þriðjungi útvarpsgjalds hvers árs. Þetta eru upphæðir sem safnast saman og skipta máli.
Svo hlýtur skýrsla fjölmiðlanefndar frá 2018 að vera tekin aftur upp á borð. Nefndin skilaði skýrslu í janúar 2018 undir forystu Björgvins Guðmundssonar. Allir þessir þættir þurfa að mínu mati að koma til umræðu í allsherjar- og menntamálanefnd með það fyrir augum að við sjáum einhverja heildstæða mynd af því hvernig þetta umhverfi mun þróast á næstunni. Við verðum að horfa á þetta í miklu víðara samhengi vegna þess að ef við klárum þetta mál eins og það liggur fyrir og síðan ætli menn í framhaldinu að fara að skoða einhverja aðra þætti, þá er ég hræddur um að langt verði þangað til að þær lausnir, sem eru mögulega miklu einfaldari, gegnsærri og skýrari en þær sem hér er verið að leggja til, verði uppi á borðum. Í því samhengi vil ég nefna möguleikann á því t.d. að virðisaukaskattur af áskriftum prentmiðla og mögulega annarra miðla verði afnuminn eða endurgreiddur, að tryggingagjald af launum hjá starfsfólki fjölmiðla verði fellt niður eða endurgreitt, og svo það atriði sem ég nefndi áðan, að umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verði takmörkuð við tiltekna fjárhæð eða stofnunin tekin alveg af þeim markaði. Síðan verði skattlagning auglýsinga í erlendum netmiðlum könnuð. Þetta eru allt saman atriði, og vissulega fleiri, sem nefnd voru í skýrslu fjölmiðlanefndar á sínum tíma og komið hafa fram í umsögnum um þetta mál á fyrri stigum.
Ég brýni menn til að skoða málið í stærra samhengi. Sú leið sem hér er farin er tyrfin og ógegnsæ og yfir henni er ára pólitískrar íhlutunar, þó að ég telji mig vita að það sé auðvitað ekki meiningin. En málið er bara þannig fram sett og unnið að sú ára er alltumlykjandi. Ég óska allsherjar- og menntamálanefnd góðs gengis við meðferð þessa máls og mun mögulega koma upp í aðra ræðu síðar í umræðunni.