fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni einlæglega fyrir þetta andsvar sem var sköruglegt og honum líkt. Það var aðeins eitt sem kannski vafðist aðeins fyrir hv. þingmanni. Ég talaði um að við fæðumst annars vegar inn í apparat sem við getum sagt okkur frá, nefnilega þjóðkirkjuna sem veitir sannarlega samfélagsþjónustu og veitir sannarlega þjónustu þeim sem bágt standa. Það sem vantaði inn í alla hina rununa hjá hv. þingmanni er það að Landspítalinn og heilbrigðiskerfið eru ekki ohf. Þótt við greiðum 10.000 kall fyrir hvern rass sem sest í sæti á sinfóníutónleikum er Sinfónían ekki heldur ohf. Þannig að að því leyti til er þetta ekki sambærilegt. Munurinn er kannski sá að ef við förum í leikhús eða á sinfóníutónleika þá greiðum við hluta af þeim kostnaði sem hlýst af þeim menningarviðburði sem við upplifum og okkur er í sjálfsvald sett hvort við kaupum okkur miða eða árskort eða hvað við viljum gera eða sleppum því. En sá sem situr heima eða í bílnum og kveikir aldrei nokkurn tímann á Ríkisútvarpinu greiðir samt fullu verði fyrir dagskrá sem hann nýtur ekki vegna þess að hann er neyddur til þess og það er engin leið út nema sex fet niður hugsanlega. (Gripið fram í.) Það er þessi mismunur sem er þarna og þess vegna er upptalning hv. þingmanns ekki algjörlega sambærileg þó að ég skilji tilraun hans til þess að reyna að gera hana sambærilega.