151. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2021.

reglubundin og viðvarandi upplýsingaskylda útgefenda verðbréfa og flöggunarskylda.

341. mál
[17:26]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu. Frumvarpið er á þskj. 415 og er mál nr. 341. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um samhæfingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað. Tilskipunin felur í sér og mælir fyrir um samræmingu reglna um birtingu reglulegra upplýsinga um útgefendur verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og um svokallaðar flöggunarreglur.

Í dag gilda tiltekin ákvæði verðbréfaviðskiptalaga nr. 108/2007 um birtingu reglulegra upplýsinga um útgefendur verðbréfa og flöggunarskyldu. Með frumvarpinu er lagt til að um það efni gildi sérlög og hliðstæð ákvæði í lögum um verðbréfaviðskipti verði felld brott. Markmið lagasetningarinnar er að tryggja gagnsæi upplýsinga um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan verðbréfamarkað til að stuðla að vernd fjárfesta og skilvirkni markaðarins.

Meginefni frumvarpsins er innleiðing á efnisákvæðum tilskipunarinnar. Í öðrum kafla er kveðið á um þær reglubundnu upplýsingar sem útgefendum verðbréfa er skylt að birta almenningi, í þriðja kafla er fjallað um flöggunarreglur og í fjórða kafla er fjallað um aðrar skyldur útgefenda verðbréfa. Þá er í frumvarpinu kveðið á um hvernig eftirlit með ákvæðum frumvarpsins fer fram, um heimildir eftirlitsaðila til upplýsingaöflunar, viðurlagaákvæði, kæru til lögreglu, vernd starfsmanns vegna tilkynningar um brot í starfsemi og heimild ráðherra til að setja reglugerðir og Seðlabanka Íslands til að setja reglur.

Meginbreytingar með frumvarpinu frá gildandi rétti má draga saman með eftirfarandi hætti: Í fyrsta lagi er hugtakið útgefandi skilgreint á þann veg að einstaklingar geta nú fallið undir skilgreininguna, sem áður var afmörkuð við lögaðila.   Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á reglum um heimaríki útgefenda verðbréfa, sem tryggja eiga að allir útgefendur verðbréfa, sem eru að nafnvirði jafngildi 1.000 evrum í íslenskum krónum og tekin hafa verið til viðskipta innan EES, lúti eftirliti lögbærs yfirvalds. Samkvæmt breytingunni ber útgefendum að upplýsa lögbær yfirvöld um val sitt á heimaríki innan þriggja mánaða. Hafi verðbréfin verið tekin til viðskipta í fleiri en einu aðildarríki verða þau öll heimaríki þar til útgefandinn velur eitt þeirra og tilkynnir um það. Í þriðja lagi er frestur útgefenda verðbréfa til að birta árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða reikningsársins lengdur úr tveimur mánuðum í þrjá. Jafnframt verður útgefendum verðbréfa gert skylt að hafa ársreikninga og árshlutareikninga aðgengilega í tíu ár, í stað fimm ára. Í fjórða lagi er lagt til að skylda útgefanda verðbréfa til að birta greinargerð frá stjórn tvisvar á ári verði felld brott, þar sem hún er talin of íþyngjandi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.   Í fimmta lagi verður útgefendum verðbréfa, sem starfa í jarðvinnslu og skógarhöggi, gert skylt að birta árlega skýrslu um greiðslur til stjórnvalda. Í sjötta lagi er frestur til að tilkynna um stofnun flöggunarskyldu lengdur úr einum viðskiptadegi í fjóra.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með framkvæmd laganna og að ársreikningaskrá kanni hvort upplýsingar í ársreikningum og árshlutareikningum séu samdar í samræmi við viðeigandi reikningsskilareglur. Fjármálaeftirlitið mun hafa hefðbundnar eftirlitsheimildir, svo sem að stöðva tímabundið eða krefjast þess að viðskipti verði tímabundið stöðvuð á skipulegum verðbréfamarkaði sé rökstuddur grunur um brot gegn ákvæðum laganna auk þess sem Fjármálaeftirlitinu verður heimilað að beita viðurlögum gegn hverjum þeim sem brýtur gegn tilteknum ákvæðum frumvarpsins. Þá kveður frumvarpið á um samstarf og upplýsingagjöf til evrópskra eftirlitsstofnana og úrlausn ágreinings milli lögbærra yfirvalda innan EES.

Virðulegi forseti. Þau ákvæði sem lögð eru til í frumvarpinu munu hafa áhrif á útgefendur verðbréfa og eigendur hluta í útgefendum verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. Breytingunum er ætlað að auka skilvirkni og sveigjanleika fyrirkomulags varðandi birtingu upplýsinga og stuðla að fjárfestavernd, draga úr íþyngjandi stjórnsýslumeðferð og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslenskra útgefenda innan EES. Hvorki er gert ráð fyrir verulegum áhrifum á stjórnsýslu né að útgjöld ríkisins aukist vegna laganna. Ég tel mikilvægt að frumvarp þetta nái fram að ganga til að styrkja fjármálamarkaði hér á landi, sérstaklega fyrir litla og meðalstóra útgefendur verðbréfa, og til að standa við samningsskuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu og svo til 2. umr. í þinginu.