reglubundin og viðvarandi upplýsingaskylda útgefenda verðbréfa og flöggunarskylda.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil taka undir það að í þessu máli sjáum við að samráðsgáttin er að sanna gildi sitt. Upphaflega var nefnilega lagt upp með að hér myndu áfram gilda aðrar reglur en gagnsæistilskipunin kveður á um, sem sagt strangari reglur þegar kemur að svokallaðri flöggunarskyldu. Ég fagna því að tekið hafi verið tillit til þessara athugasemda vegna þess að þær eru mjög mikilvægar. Ég vil hér og nú hvetja ráðherra og nefndina í störfunum sem fram undan eru til að nota það tækifæri sem nefndin hefur með þessu frumvarpi til að reyna að draga úr þeim aðgangshindrunum sem eru hér á landi þegar kemur að erlendri fjárfestingu, t.d. tilkynningarskyldunni og fleiri þáttum. Við þurfum að samræma þetta vegna þess að fram undan er mikilvæg viðspyrna okkar. Þá verðum við að hafa nákvæmlega sömu möguleika og þjóðir á evrópska efnahagssvæðinu á því að hingað til lands komi erlend fjárfesting. Það hefur ekki verið þannig og það eru fleiri aðgangshindranir. Hér er alla vega verið að laga þennan þátt sem ég fagna. Eins og ég segi aftur vona ég að nefndin nýti tækifærið til að ganga úr skugga um að hér sé stigið það skref sem er nauðsynlegt, að samræma gagnvart gagnsæistilskipuninni. Ef það er eitthvað annað ætti nefndin svo sannarlega einnig að fara yfir það.