tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Já, ég get svo sem tekið undir að það skiptir máli að við götum ekki málið að nýju með útgáfu reglugerðar þannig að við myndum opna fyrir einhvers konar grænþvott, eins og hv. þingmaður kom inn á. En ég tel nú að ásetningur okkar sé alveg skýr og þegar kemur að þeim viðmiðunum sem stuðst verður við þá er það rakið í frumvarpinu hvernig horft hefur verið til heimsmarkmiðanna og að flokkarnir byggi á alþjóðlegum reglum og viðmiðunum, m.a. regluverki Evrópusambandsins og flokkunarkerfi þess en einnig á öðrum viðmiðunum og leiðbeiningum.
Ég er ekki viss um að þetta sé mjög raunhæft dæmi sem hv. þingmaður nefnir og reyndar tók fram að kannski sé ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur af þessu. En það er sjálfsagt að skoða þetta. Olíuiðnaðurinn á Íslandi er mjög takmarkaður. Við erum aðallega bara að flytja inn olíu og dreifa henni og litlar rannsóknir og önnur slík starfsemi sem fer hér fram. En ég held að það sé í mjög góðu samræmi við þau markmið sem við höfum verið að setja sem ríkisstjórn að nota þetta tækifæri, bæði til að flýta grænu umbreytingunni og örva fjárfestingu á sama tíma með því að nýta skattkerfið. Og jafnvel þótt það megi halda því fram að fjárfestingarstigið hafi farið svo langt niður að við ættum að horfa víðar yfir sviðið þá er það engu að síður þannig að Samtök atvinnulífsins hafa tekið mjög jákvætt í þetta mál og telja einmitt að fjárfestingarþörfin sé sérstaklega til staðar í þeim geirum sem við erum að tiltaka hér.