151. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2021.

störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Forseti. Í hv. velferðarnefnd, sem ég á sæti í, er nú til umfjöllunar frumvarp hæstv. heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum. Tengt þessu hefur sú sem hér stendur tjáð sig í ræðu og riti um afstöðu sína gagnvart hugmyndinni um skyldubólusetningu, sem er að finna í núverandi frumvarpi.

Til að taka af allan vafa um afstöðu mína til bólusetningar vil ég taka það fram að ég er fylgjandi bólusetningu og ég hlakka til að þiggja minn skammt af bóluefni gegn Covid-19 og hvet sem flesta til að gera það líka. Hins vegar hefur nokkuð afgerandi gagnrýni mín snúið að þeirri hugmynd að skylda fólk í bólusetningu, þeirri hugmynd að ríkisvaldið gæti skyldað borgara landsins til þess að láta bólusetja sig. Það fæli í sér að þvinga mætti heilbrigt fólk með valdi til að taka við lyfi og læknismeðferð. Í fyrsta lagi yrði slíkt fyrirkomulag skýrt brot á mannhelgi einstaklingsins, brot á stjórnarskrárvörðum rétti fólks til að hafna læknismeðferð og stæðist ekki stjórnarskrá. Hugmyndin brýtur því að sjálfsögðu í bága við grunngildi okkar Pírata og það sama á við um útgöngubann. Markmiðið með slíkri lagasetningu hlyti að vera að sem flestir yrðu bólusettir gegn veirunni.

Hins vegar er það svo og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sett það fram, bæði hvað varðar núverandi áskoranir í sambandi við Covid sem og í sambandi við ungbarnabólusetningu, að farsælla sé að fræða en þvinga ellegar aukist hætta á andspyrnu og pólaríseringu umræðunnar, sem vinnur gegn markmiðinu. Það er mun heillavænlegra í alla staði að leita frekar upplýsts samþykkis borgaranna með fræðslu og opnu samtali þegar vilji stendur til að reyna að sannfæra mjög marga um að gera sama hlutinn í þágu almannaheilla, enda þætti mér það, virðulegi forseti, löt stjórnmál að reiða sig á harkalega lagasetningu í þeim yfirlýsta tilgangi að vilja stuðla að heilbrigði heillar þjóðar.