151. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2021.

störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ein af aðgerðum stjórnvalda vegna kórónuveiru var samþykkt á Alþingi í maí í fyrra í formi sérstaks styrks til íþrótta- og tómstundastarfs barna sem koma frá tekjulágum heimilum. Atvinnuleysi er í sögulegu hámarki og á ákveðnum svæðum er einn af hverjum fjórum einstaklingum án atvinnu. Inni á heimilum atvinnuleitenda búa börn og það er stjórnvalda að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda þau og mögulega fjölskyldu þeirra vegna framfærslu. Ætlunin var að tryggja að öll börn óháð efnahag gætu stundað íþróttir og aðrar tómstundir síðastliðið sumar.

Við í velferðarnefnd fjölluðum við upphaf haustþings um stöðu mála á Suðurnesjum og fengum þau svör að lítið væri um að umsóknir um þessa styrki væru að berast. Ástæðan sögð ókunn. Í Stundinni í dag er svo komin frétt um málið. Þar kemur fram sú skelfilega staðreynd að þetta úrræði virðist bara alls ekki hafa náð tilætluðum árangri. Aðeins 9% þeirra barna sem búa við fátækt hafa sótt um þennan styrk. Ástæðan virðist vera alger forsendubrestur við útfærslu þessa úrræðis af hálfu stjórnvalda. Það er nefnilega þannig að hæstv. félags- og barnamálaráðherra virðist hafa tekist að gera flækjustigið svo hátt að þau börn sem búa við fátækt geta ekki nýtt sér þetta. Sú aðferð ráðherra að gera fátæku fólki að greiða æfinga- og tómstundagjöld úr eigin vasa og þurfa svo að sækja um endurgreiðslu er einfaldlega ekki eitthvað sem fátækt fólk, sem þarf að velja hvernig það á að koma börnum sínum í háttinn án þess að þau séu sársoltin, getur gert. Þetta, herra forseti, er birtingarmynd af eindæma skilningsleysi stjórnvalda á þeim aðstæðum sem fjöldi fjölskyldna býr við á Íslandi í dag.