breyting á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála .
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég skildi orð hv. þingmanns þannig að hann væri mögulega að taka undir þá skoðun að þetta væru orðnar ansi margar sjálfstæðar úrskurðarnefndir mjög víða í kerfinu. Ég er á þeirri skoðun að svo sé og sú vinna sem ríkisstjórnin fékk Pál Hreinsson í kemst í raun að sambærilegri niðurstöðu, að það þurfi að fara í ákveðna vinnu hvað það varðar. Úrskurðarnefndir eru vísir að svokölluðum „small claims court“, á ensku, sem er þá stjórnsýsludómstóll, og þegar við horfum á allar þær nefndir sem við erum með hér eru þær aðeins fjölbreyttari en það. Ég held að við stöndum alveg frammi fyrir slíku verkefni og það hefur verið rætt í stærra samhengi innan ríkisstjórnarinnar. En þetta mál er í raun of lítið fyrir þá umræðu. Það þyrfti að taka í miklu stærra samhengi, fleiri nefndir á fleiri sviðum, og þyrfti þá að vera ákvörðun kerfisins að fara í slíka vinnu af einhverri alvöru. Þessar breytingar sem hér er verið að leggja til eru það litlar og afmarkaðar að það gæti aldrei verið forsenda fyrir slíkri ákvörðun. En ég held að þá umræðu megi taka og þess vegna var farið í þá vinnu á sínum tíma og við fengum Pál Hreinsson til að fjalla um marga misflókna þætti í því, á hvaða tímapunkti það fer ýmist að svara kostnaði eða bæta stöðu fólks eða hvort við séum að flækja málin með slíkum dómstól. En það mál var ekki sett á dagskrá í tilefni af þessu frumvarpi og þær breytingar sem við leggjum til hér eru einfaldlega það afmarkaðar og litlar að það myndi aldrei geta haft áhrif á þá stóru ákvörðun sem þyrfti að vera kerfisins alls að taka.