jarðalög.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um breytingu á jarðalögum, á þskj. 467, 375. mál. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á jarðalögum í þeim tilgangi að einfalda regluverk og um leið gæta betur að vernd landbúnaðarlands. Er það til samræmis við áherslur í sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kemur fram að átak verði gert í einföldun regluverks. Veigamestu tillögur frumvarpsins eru um brottfall aðkomu ráðherra landbúnaðarmála að ákvörðunum um landskipti og lausn lands úr landbúnaðarnotum. Þess í stað er lagt til að með jarðalögum verði gefnar leiðbeiningar um til hvaða efnisatriða verði skylt að líta við breytingar á skipulagi landbúnaðarsvæða. Samhliða frumvarpinu er unnið að leiðbeiningum um flokkun landbúnaðarlands sem gert er ráð fyrir að verði gefnar út fyrir árslok. Er einnig lagt til að ákvarðanir um skipti á landi jarða verði grundaðar betur með því að sveitarfélögum verði heimilt að krefjast upplýsinga um og líta til áhrifa slíkra skipta á búrekstrarskilyrði. Þessar tillögur hafa verið í undirbúningi í ráðuneyti mínu í á annað ár og hafa tvisvar verið kynntar á samráðsvef Stjórnarráðsins.
Frumvarpið varðar veigamikil íhugunarefni um hagnýtingu og ráðstöfun ræktunarlands. Það er vel að Alþingi gefist nú tækifæri til að fara yfir þessi mál að nýju þegar liðin eru rúm 15 ár frá því að gildandi jarðalög voru sett. Oft er um það rætt að Ísland sé stórt land. Það er rétt en þegar hugað er að því hvað við eigum af landbúnaðarlandi eða jarðræktarlandi er myndin töluvert önnur. Einungis um fjórðungur landsins er neðan 200 metra hæðarlínu og er láglendi því mjög breytilegt, svo sem við þekkjum. Fyrir nokkrum árum álitu sérfræðingar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins að einungis 6% landsins gætu talist ræktanleg eða um 600.000 hektarar og af því landi gæti aðeins lítill hluti talist til mjög góðs ræktarlands. Nánari grein er gerð fyrir þessu í skýringum með frumvarpinu.
Það er sömuleiðis íhugunarefni hvernig þessi auðlind verður varðveitt til framtíðar og með hvaða hætti. Besta leiðin til að vernda landbúnaðarland er að sjálfsögðu sú að nota það og nýta til landbúnaðar og er með frumvarpinu gert ráð fyrir að hugað verði betur að vernd ræktarlands, bæði í skipulagsgerð og við töku ákvarðana um skipti á landi.
Öðrum tillögum frumvarpsins má skipta í þrjá flokka. Í fyrsta lagi er lagt til að lögin verði einfölduð með því að felld verði á brott ýmis óþörf eða villandi ákvæði í þeim. Er gerð góð grein fyrir þessu í skýringum með frumvarpinu og vísast til þess sem þar segir.
Í öðru lagi er lagt til að skilyrði forkaupsréttar ábúenda að jörðum verði afmörkuð með skýrari hætti þannig að tryggt sé að þessa réttar verði gætt, einnig þegar aðilaskipti verða að hlutum í félagi sem á jörð sem háð er forkaupsrétti. Þykir eðlilegt að afmarka reglurnar með þeim hætti í ljósi þess að nú er mun algengara en áður að ópersónulegir aðilar eigi jarðir og þá einnig jarðir sem geta verið í ábúð samkvæmt ábúðarlögum.
Í þriðja lagi eru lagðar til nokkrar breytingar á ákvæðum 10. gr. b sem komu í jarðalög samkvæmt fyrirmælum í lögum nr. 85/2020, sem samþykkt voru á 150. löggjafarþingi. Varða þessar breytingar einkum meðferð og form upplýsinga sem aflað er til framkvæmdar samþykkisreglu í 10. gr. a í lögunum og miðlun þeirra upplýsinga milli stjórnvalda. Eru þessi ákvæði frumvarpsins samin í samráði við embætti Skattsins og stýrihóp forsætisráðherra um fasteignamál sem hefur komið að undirbúningi og framkvæmd þessara nýju ákvæða í jarðalögum.
Frumvarpið er liður í heildstæðri endurskoðun löggjafar um jarðir og aðrar fasteignir í íslenskum rétti sem að mestu er unnin á vettvangi sérstaks stýrihóps um heildstæða löggjöf varðandi jarðir og aðrar fasteignir þar sem fulltrúar míns ráðuneytis eiga sæti með fjölmörgum öðrum aðilum.
Virðulegi forseti. Ég vil að öðru leyti vísa til þeirra athugasemda sem fylgja frumvarpinu. Þar er ítarlega fjallað um og gerð grein fyrir efni þess. Að lokinni umræðunni legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar.