151. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2021.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða .

419. mál
[18:03]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gríðargott andsvar og vel ígrundað. Hann spyr: Hver er nauðsynin og hver er sýnin á bak við þetta? Ég setti á laggirnar starfshóp skipaðan helstu hagaðilum ásamt með sérfræðingum í málinu sem skilaði mér m.a. þessari tillögu. Þeir yfirfóru þetta allt saman. Þar við bætist að þetta hefur verið lengi til umræðu meðal grásleppusjómanna. Þess vegna svaraði ég því játandi að aðrir kostir hefðu að sjálfsögðu verið metnir og þetta hefði verið mikið rætt. Þegar hv. þingmaður spyr: Er ekki hætta á því að þetta safnist á fáar hendur? Það eru viðskipti með leyfi. Takmarkaður fjöldi báta má stunda grásleppuveiðar, 449 bátar. Það eru eingöngu bátar sem voru á þessum veiðum árið 1997. Þrátt fyrir þennan fjölda voru ekki nema 209 bátar á veiðum á síðustu vertíð og hafði fækkað um rúmlega 100 á tíu árum. Þannig að það er að fækka í greininni og þessir karlar sem stunda þetta kalla á að hafa meiri fyrirsjáanleika í því sem þeir eru að gera. Mér finnst bara sjálfsagt að við reynum að gera það og mæta þeim óskum. Þetta eru þeir sem þekkja aðstæðurnar best, vita nákvæmlega hvar sverfur að og hvað þarf að bæta. 244 grásleppusjómenn kalla eftir því að takast á við þetta verkefni eins og það kemur fram í frumvarpinu á meðan 209 bátar eru til sjós. (Forseti hringir.) Ætlar þingið ekki að virða þessi sjónarmið og reyna að mæta þeim? Ég segi jú, að sjálfsögðu gerum við það. Og ég treysti því að aðrir hugsi með sama hætti.