151. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2021.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða .

419. mál
[18:08]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ef hv. þingmaður telur þessa atvinnugrein ekki sjálfbæra eins og hún er í dag, hvaða leiðir sér hann þá út úr þessu aðrar en þær að koma veiðistjórninni á þann stað sem allir sérfræðingar í sjávarútvegi telja góðan, þ.e. að sérfræðiráðgjöf og nýting fiskstofna fari saman, að það sé samfella í því?

Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að fylgja þeirri ráðgjöf sem við fáum til að hámarka arðsemina. Reynslan undanfarin ár er sú að það hafa að meðaltali verið 20% framhjáskot frá ráðgjöfinni, plús eða mínus. Við erum ekki að nýta þetta með skynsamlegum hætti, stundum yfir, stundum undir. Reynslan af síðustu vertíð ætti að kenna okkur öllum að sú stjórnun sem á þessu hefur verið er alls ekki góð þar sem ráðherra neyðist til að beita ákveðinn hluta sjómanna nánast ofbeldi til að halda veiðunum innan þeirrar ráðgjafar sem gefin var út. Mér finnst með ólíkindum að menn hangi í þessu gamla kerfi og tali um það eins og það sé alveg stórgott. Hver er nýliðunin í því eins og hún hefur verið? Engin. Á hvaða ótta er verið að ala hér með að við setjum þetta í aflahlutdeild, að menn fari að selja leyfin? Þau ganga kaupum og sölum í dag. Það er takmarkaður hópur sem má stunda veiðarnar í dag og hann er ekki einu sinni allur að stunda þær. Við hvað eru menn hræddir? (Forseti hringir.) Ég bara spyr: Við hvað eru menn hræddir? Við skuldum grásleppusjómönnum svör ef menn treysta sér ekki til að takast á við þær spurningar sem frumvarpið kveikir upp.