151. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2021.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða .

419. mál
[18:16]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mig langar að ræða þessi mál varðandi veiðar á grásleppu. Þær hafa verið umdeildar undanfarin misseri eins og hæstv. ráðherra kom inn á og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Við í þingflokki Vinstri grænna höfum haft fyrirvara á þessu máli og erum yfir höfuð ekki hlynnt kvótasetningu á grásleppu. Það hefur legið fyrir lengi svo að okkur þykir að þarna sé verið að boða miklar breytingar á þeim hluta kerfisins sem er félagslegi hlutinn, og það stefni allt í það að í framhaldinu verði mikil samþjöppun, að það borgi sig ekki að gera út miðað við aflareynslu og viðmið á því þriggja ára tímabili sem hæstv. ráðherra nefndi, 2014–2019. Við óttumst að margir muni heltast úr lestinni og samþjöppun geti orðið mikil og kannski standi eftir einhverjir 50 bátar og aðrir selji sig út úr greininni þegar þeir sjá fram á að veiðarnar beri sig ekki miðað við þá viðmiðun sem þeir fá.

Ég held að það sé ekki góð þróun heldur mjög slæm því að þetta styður hvort annað, það sem er innan félagslega kerfisins — strandveiðar, sértæki byggðakvótinn og almenni byggðakvótinn, grásleppuveiðar, makrílveiðar, þegar þær gefast á færi — og þegar verið er að kippa einhverri stoð undan er hætta á því að dóminóið falli, hver kubbur fyrir sig.

Hæstv. ráðherra kom inn á að 244 grásleppusjómenn hefðu komið með undirskriftalista til sín um þessi mál. Ég fékk þær upplýsingar hjá viðkomandi aðilum, sem lögðu þessa undirskriftalista fram, að það væru ekki einstaklingar sem stæðu þar að baki heldur gæti einstaklingur verið með þrjú leyfi sem teldist þá vera þrjár undirskriftir. Ég held að það sé hárrétt, þetta eru ekki 244 einstaklingar heldur 244 leyfi og svo getur allur gangur verið á því hve margir einstaklingar eru á bak við því að margir eiga fleiri en eitt leyfi.

En allt í góðu með það. Það er bara eðlilegt að skoðanir séu skiptar á þessu eins og mörgu öðru. Það var líka samþykkt á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda að fara ekki í kvótasetningu á grásleppu heldur fara aðrar leiðir. Ég tel mikilvægt að þær leiðir verði líka skoðaðar í þessari vinnu og við sjáum hvað kemur út úr því. Við vitum að við Grænland er veiðunum stjórnað með öðrum hætti, þar er skipt upp í svæði og magni inn á svæðin. Við höfum stýrt þessum veiðum til margra ára innan ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar með dagakerfi. Þar hafa haldist í hendur markaðsmál, verð á mörkuðum, og greinin hefur verið í góðu samstarfi við sjávarútvegsráðuneytið um útfærsluna, hvenær rétt sé að byrja og hvenær menn hægja á veiðum vegna þess að markaðsverð er ekki hagstætt.

Ég held að við þurfum bara að skoða þetta vel. Síðasta sumar var ekki dæmigert fyrir það hvernig veiðarnar hafa verið undanfarin sumur og þær hófust fyrr en venja hefur verið, þær hófust 10. mars. Aflinn varð það góður á norðausturhorni landsins að mjög margir í öðrum landshlutum náðu ekki að hefja veiðar eða voru komnir mjög skammt á veg. Auðvitað vill enginn sjá það endurtaka sig. Þess vegna þarf að liggja fyrir tímanlega fyrir næstu vertíð hvernig staðið verður að veiðum og það þarf að gera í góðu samtali og samstarfi við greinina sjálfa, hvort sem menn fara út í það að skipta upp svæðum með því að láta magn inn á hvert svæði og hafa einhvern sveigjanleika þar inni eða ekki. Við þekkjum það að veiðarnar byrja mismunandi snemma eftir landshlutum og ég held að það sé alveg hægt að ná góðri niðurstöðu í þetta mál þó að við förum ekki þá leið að fara að kvótasetja. Það kallar þá á enn frekari rannsóknir eins og það sem kemur hér fram varðandi ýmsar aðrar tegundir sem ég tel að þurfi að skoða betur; en það skortir rannsóknir svo að hægt sé að taka ákvarðanir í þeim efnum.

Við þurfum líka að horfa til byggðafestu eins og margoft hefur verið rætt í þessum stól nú undanfarið. Það skiptir miklu máli. Ekki bara er þetta hluti af menningu okkar og fylgir ákveðnum byggðum. Við viljum heldur ekki horfa upp á að allur grásleppukvótinn hverfi úr einhverjum byggðum og þar geti menn ekki stundað þær veiðar lengur vegna þess að einhverjir aðilar ákveða á einhverjum forsendum að selja sig út úr kerfinu.

Það er hárrétt hjá hæstv. ráðherra að leyfin ganga kaupum og sölum og þau kosta auðvitað sitt en ekki eins mikið og aflaheimildir munu verðleggjast á ef kvótinn þjappast saman á fárra manna hendur. Það hefur verið talað um að það geti orðið einhverjir 50 bátar ef það borgar sig ekki að fara á veiðar, ef menn fá kannski úthlutað 15 tonnum. Ég tel að við þurfum að skoða þetta og fá til okkar þá aðila sem þarna eiga hagsmuna að gæta og byggðarlögin. Við þurfum að hlusta á öll sjónarmið í þessum efnum.

Þetta er eldheitt og umdeilt mál og við verðum bara að vera þingmenn til þess að vinna með það að það er alltaf erfitt þegar mjög ólík sjónarmið rekast á. Við verðum samt að taka málið til efnislegrar umræðu, ég get verið sammála hæstv. ráðherra með það. Svo sjáum við bara til hvernig okkur gengur að lenda því. En í mínum huga er kvótasetning vond á þann hluta kerfisins sem við höfum flokkað sem félagslega hlutann sem mótvægi við stóra hlutann sem er í aflamarki og kvótasetningu, horfandi upp á alla þá gífurlegu samþjöppun sem hefur orðið þar og líka í krókaaflamarkskerfinu. Það hefur ekki reynst byggðunum vel né byggðafestu.