vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum .
Hæstv. forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það eru akkúrat þessar mælingar á stofnstærðum sem skipta lykilmáli. Það er kannski rauði þráðurinn í gegnum þetta frumvarp og helsta nýmælið að setja inn kröfu um að gert sé stofnstærðarmat, veiðiþol o.s.frv., hvernig þróunin er yfir tíma og þar fram eftir götunum. Í rauninni á að vinna það fyrir alla stofna. Það er mjög mikilvægt að þetta sé komið inn, þ.e. skylda til að gera stjórnunar- og verndaráætlanir fyrir alla þessa stofna á grunni vísindalegrar þekkingar, heimildaöflunar og vöktunar yfir tíma, sem skiptir líka máli þannig að við reynum að ná yfir stofnstærðarsveiflurnar, og að reynt sé að taka ákvarðanir á grundvelli faglegra og vísindalegra vinnubragða.