áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar að fá að eiga við hann orðastað um einn þátt hennar sem mér finnst áhugaverður. Mig langar að ræða aðeins nánar hvernig þessi áætlun gengur gegn skipulagsvaldi sveitarfélaga. Það er mál sem undanfarið hefur mikið verið í umræðunni og kom mér pínulítið á óvart hve sú umræða hefur orðið hávær, hve mörg hafa talað mjög hátt um það akkúrat núna — ég tengi það ekki síst umræðu um hálendisþjóðgarð — og kannski fólk sem hingað til hefur ekki talað um þau mál þó að Alþingi hafi verið að samþykkja lög sem ganga á nákvæmlega sama hátt gegn því skipulagsvaldi. Mig langar því til að spyrja hv. þingmann: Telur hann að hið sama gildi um kerfisáætlun?
Í raforkulögum segir, með leyfi forseta:
„Sveitarstjórnum ber við næstu endurskoðun aðalskipulags, og eigi síðar en innan fjögurra ára frá samþykkt kerfisáætlunar, að samræma skipulagsáætlanir vegna verkefna í staðfestri tíu ára kerfisáætlun.“
Kerfisáætlun Landsnets gengur, með öðrum orðum, ofar og þá gegn skipulagsvaldi sveitarfélaga. Nú get ég ekki skilið hv. þingmann öðruvísi, svo að ég noti hans eigin orð, en að þá sé verið að taka valdið suður til Reykjavíkur. Mun hv. þingmaður þá berjast fyrir því að skipulagsvaldið gagnvart kerfisáætlun Landsnets verði flutt aftur til sveitarfélaganna og einstaka sveitarfélög geti þá sagt nei við línulagningu sem Landsnet er með á áætlun? Ef ekki er hv. þingmaður kominn í fullkomna mótsögn við sjálfan sig og það veit ég að hv. þingmaður vill ekki gera.