151. löggjafarþing — 47. fundur,  21. jan. 2021.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

370. mál
[16:15]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Hún er lífseig, umræðan um rammaáætlun og hún er meira að segja seig líka, ekki bara lífseig. Ég ætla að koma aðeins inn á önnur atriði. Ég ætla ekki að ræða um orkukosti eða málsmeðferð rammaáætlunar. Ég ætla aðeins að fara í forsendurnar, eða hluta þeirra, sem eru annars vegar orkuframleiðslan bæði núna og fram á við og svo orkunotkunin því að allt spilar þetta saman. Þær tölur sem ég fer með hér eru svona til stærðargráðuviðmiðunar, ekki mjög nákvæmar tölur upp á megavatt. Það er auðveldara að fylgjast með þannig. Ég er að reyna að leggja fram greiningu á stöðunni og horfunum.

Þannig lítur þetta út núna með raforkuframleiðsluna að verið er að framleiða um 2.700 MW. Það er hægt að bæta við 200–300 MW með ýmsum aðferðum, aðallega bættum flutningi og kannski að keyra vélar aðeins harðar sums staðar. Síðan er hægt að bæta við álíka afli, 200–300 MW, eins konar viðbótarframleiðslu, og það gerist með því að nota aukið rennsli jökulvatna vegna loftslagsbreytinga og í sumum tilvikum með því að skipta um hverflablöð í túrbínum sem knýja áfram hverflana og framleiða rafmagnið. Það er sem sagt hægt að bæta við um 400–600 MW í núverandi kerfi án þess að byggja nýjar virkjanir í sjálfu sér eða virkja á nýjum stöðum. Þetta er dágóður slatti sem er gott að eiga í rassvasanum.

Þegar kemur að notkuninni eru þar nokkrir þættir. Það eru orkuskipti í samgöngum og þar eru bílar og vinnutæki, flugvélar og stærri skip, bátar, smærri för, og hafnirnar sjálfar. Síðan er eitt og annað sem tengist eldsneytisframleiðslu, við getum kallað vetni eldsneyti þó að það framleiði yfirleitt rafmagn þegar það er notað, svo er alkóhól og fleira þannig að eldsneytisframleiðsla kemur þarna inn í. Þetta er dágóður slatti af megavöttum og nú fer það eftir tímaramma og hversu langt við horfum hvaða tölu við setjum á þetta. En það er yfirleitt talað um 500–1.000 MW, eftir því hvað við horfum fram í tímann og hversu víðtæk orkuskiptin eru, t.d. ef við ætlum að fara út í hafnirnar þannig að öll stór skip og jafnvel skemmtiferðaskip geti nýtt sér raforku þar. Það er þá komið á blað. Það er hægt að segja, ef við notum það sem er til reiðu, að ef við notum ónýtt afl og viðbótarframleiðslu væri hægt að fara jafnvel hálfa leiðina upp í þessar hærri tölur sem ég var að nefna, 1.000 MW. Síðan er það fólksfjölgun og smærri iðnaður, það er í svokallaðri orkuáætlun frá Orkustofnun og þar er yfirleitt talað um til ársins 2050 nokkur hundruð megavött, 400, 500, 600 eftir því hvað menn miða við. Það bætist við þá tölu sem ég hef þegar viðrað. Þarna er inni ákveðinn sparnaður vegna þess að eins og menn vita þá er hægt, sérstaklega í heimilishaldi, að spara töluvert mikið rafmagn. Þessi tala hefur lækkað á vissan hátt en hún hækkar auðvitað í takt við aukinn mannfjölda og ýmiss konar iðnað og nýsköpun sem er í gangi.

Síðan kemur að því sem við getum kallað orkufreka starfsemi, gagnaver og annað slíkt. Þar eru auðvitað málmiðjuverin og kísilverin, eða þetta eina sem er starfandi, hrákísilver. Þau eru mjög orkufrek en það er spurning hvernig þetta þróast í framtíðinni, hvort eitthvað af þessu loki, framleiðsluaðferðir breytist o.s.frv. Það er í raun og veru spurningarmerki hvort þarna verði eitthvað til af lausum megavöttum eða ekki. Gerum bara ráð fyrir því að svo verði ekki í mínu máli hér á eftir. Ef við sleppum þessari orkufreku starfsemi og því sem við kunnum að fitja upp á, t.d. í stórfelldri matarframleiðslu til útflutnings, það er líka stórt spurningarmerki, erum við að tala um 900–1.500 MW sem hægt er að segja að vanti inn í kerfið. Það er þá á næstu áratugum. Það leysum við með því að nota jarðvarmann. Nú er t.d. verið að stækka Reykjanesvirkjun. Við notum vatnsafl og við notum vindafl. Ef ég tek einhverja meðaltalstölu gæti það verið 1.200 MW. Það er töluvert, það er næstum því helmingurinn af því sem nú er framleitt í landinu. Það er sennilegt að vindaflið muni vega mjög þungt í þessu. Það eru mörg verkefni eða verkefnistillögur á borðinu, t.d. norskt fyrirtæki sem hefur augastað á tíu stöðum á landinu. Ef svo færi að þeir væru allir nýttir og þar kæmu vindorkuver væri það yfir 2.000 MW. Menn sjá stærðargráðuna á því. Það er því hægt að segja í framhjáhlaupi að mikilvægt sé að koma böndum á þá þróun, þ.e. vöxt vindaflsnotkunar hér á Íslandi. Hæstv. umhverfis- og samgönguráðherra kom aðeins inn á það fyrr í máli sínu í dag hvernig það mætti gerast.

Þegar þetta er lagt saman þá ætla ég að fullyrða að orð — ég vil nánast kalla það mýtu eða goðsögn — um að ekki sé þörf á frekari raforkuframleiðslu um árabil á Íslandi, eru meira en lítið vafasöm. Það er jú þannig að hvernig sem á það er litið þá mun framtíðin kalla á 500, 1.000, 1.200, 1.300, 1.500 MW viðbótarframleiðslu á næstu áratugum. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá verðum við að horfast í augu við það og gera viðeigandi ráðstafanir.

Við leysum það að mínu mati á hagkvæman hátt á grænan, sjálfbæran hátt, á varkáran hátt, í takt við orkuþörfina á hverju fimm ára tímabili. Það er jú þannig að orkuöflun er tiltölulega tímafrek í undirbúningi, bygging orkuvera og annað, þannig að við þurfum alltaf að vera dálítið á undan kröfum um orku þannig að hlutirnir fari nánast ekki í strand af því að við erum of sein á okkur. Engu að síður er orkuþörfin töluverð, veruleg eftir því hvaða lýsingarorð menn vilja nota. Inn í þetta spilar svo orkuöryggi sem er ákaflega mikilvægt á Íslandi, eins og við vitum öll, bæði vegna orkufrekrar starfsemi, hvort sem það eru málmver eða gagnaver eða hvaðeina sem ekki má stöðvast. Þetta eru verkefnin og við vinnum þau í nafni umhverfisverndar sem verður að tákna að við finnum jafnvægi á milli orkuframleiðslu, orkunotkunar og náttúruverndar. Það er verkefnið fram undan.