151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

auðlindaákvæði í stjórnarskrá.

[13:55]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Herra forseti. Árið 2012 var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Þá var spurt sérstaklega um auðlindir í þjóðareigu og yfir 80% þeirra sem tóku þátt vildu slíkt ákvæði. Síðan hafa ýmsar kannanir staðfest þennan eindregna þjóðarvilja í þá átt. Það má segja að nokkuð langur vegur sé á milli tillagna stjórnlagaráðs um þetta og svo aftur núverandi tillagna hæstv. forsætisráðherra. Í tillögu stjórnlagaráðs segir, með leyfi forseta:

„Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar.“

Í tillögu hæstv. forsætisráðherra er textinn óneitanlega svipminni. Hann er svona, með leyfi forseta:

„Auðlindir náttúru Íslands tilheyra íslensku þjóðinni.“

Af því að við vorum að tala um íslenska tungu áðan var mér ungum kennt að sögnin að tilheyra væri dönskusletta og móður minni þótti það ekki góð íslenska. En látum það liggja milli hluta.

Í tillögum stjórnlagaráðs er talað um fullt gjald fyrir leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða. Og talað er um að það sé til tiltekins hóflegs tíma í senn. Í meðförum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins breytist þessi texti. Talað er um eðlilegt gjald sem er svo skilgreint nánar í greinargerð en það á áfram að binda til hóflegs tíma. Í tillögu núverandi forsætisráðherra er látið duga að segja:

„Með lögum skal kveða á um gjaldtöku fyrir heimildir til nýtingar í ábataskyni.“

Af hverju ekki? Er ekki mikilvægt að tryggja að tímamörk séu á þessum afnotarétti svo að þjóðareignir séu ekki bara orðin tóm? (Forseti hringir.) Og þarf ekki að tryggja a.m.k. að eðlilegt gjald komi fyrir þessi dýrmætu afnot? Hvaða hagsmunir eru hér í forgrunni?