auðlindaákvæði í stjórnarskrá.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni fyrir stílleiðbeiningar í frumvarpaskrifum. Það er ágætisumræða, sem ég held þó að sé ekki aðalefni fyrirspurnar hans hér. Mér fannst ágætt að hv. þingmaður las einmitt upp tillögur stjórnlagaráðs þar sem rætt var um að auðlindir sem ekki væru í einkaeigu skyldu vera eign þjóðarinnar, sem síðan var breytt af meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þá var einmitt komið orðalagið „auðlindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti“. Teljum við þá að meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hafi verið að leggja fram tillögu stjórnlagaráðs eða grundvallaðist frumvarpið, eins og það leit út eftir meðferð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eða meira hluta hennar, á tillögunum? Ég myndi segja að það hafi grundvallast á tillögunum. Og nákvæmlega sama orðalag, „sem ekki eru háðar einkaeignarrétti“, má finna í því ákvæði sem er í frumvarpinu sem ég hef nú lagt fram til þingsins.
Staðreyndin er sú, sama hvað fólki kann að finnast, að mjög margt í þeim tillögum byggist einmitt á þeim grundvelli sem finna mátti í tillögum stjórnlagaráðs. En vissulega var spurningin kannski eftir á að hyggja ansi hreint opið orðuð úr því að við höfum getað deilt um túlkun hennar æ síðan.
Gjaldið, sem var „fullt“ í tillögum stjórnlagaráðs, breyttist í „eðlilegt“ hjá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Eigi að síður eru margir sem tala enn um að fullt gjald ætti það að vera, gjald sem væri ákvarðað með einhvers konar útboði á markaði, sem myndi þá sömuleiðis skilgreina með mjög skýrum hætti í stjórnarskrá hvernig nýta ætti auðlindir, t.d. auðlindir sem eru reknar með samfélagslegum hætti í samtímanum. Og væntanlega þess vegna var það niðurstaðan að fundið var upp hugtakið „eðlilegt gjald“ sem leggur það töluvert mikið í hendur löggjafans að ákvarða hvers konar gjald skuli teljast eðlilegt hverju sinni. Og hvað er lagt til í því frumvarpi sem ég legg til? Jú, einmitt að þegar auðlindir eru nýttar í ábataskyni þá skuli löggjafinn taka afstöðu til þess hvert gjaldið eigi að vera.
Ég kem að tímabindingunni á eftir enda erfitt að svara á tveimur mínútum.