auðlindaákvæði í stjórnarskrá.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og við eigum eftir að ræða þetta oft og mikið. Já, það er alveg rétt að fullt gjald breyttist í eðlilegt gjald í meðförum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, en um leið er í greinargerð með frumvarpi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar mjög rækileg skilgreining á því hvað eðlilegt gjald sé á meðan ákvæðið í núverandi mynd hjá hæstv. forsætisráðherra er mjög opið. Þessi skortur á tímabindingunni í ákvæðinu þýðir að það má úthluta þessum heimildum ótímabundið að kalla, þær þurfa bara að vera afturkallanlegar og slíkt getur verið flókið, bæði pólitískt og praktískt. Ég verð að segja það, herra forseti, að sporin hræða í þeim efnum. Hvers vegna er ekki bara hægt að binda þetta fast?