151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:39]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Varðandi það þegar hv. þingmaður talar um að um sé að ræða skörun milli hópa þá er það náttúrlega alveg ljóst, og hefur komið ítrekað fram í mínu máli, að hóparnir eru skilgreindir eftir mismunandi þáttum; að hluta til eftir aldri, að hluta til eftir búsetu og að hluta til eftir heilsufarsstöðu. Það gefur augaleið að um einhverja einstaklinga á það við að viðkomandi býr á hjúkrunarheimili, er aldraður og í viðkvæmum hópi. Það hefur legið fyrir allar götur.

Það gætir nokkurs misskilnings í spurningu hv. þingmanns varðandi það að við höfum verið í þeirri stöðu að ákveða fjölda skammta frá tilteknum fyrirtækjum. Það er þannig að við erum í samfloti með öðrum Evrópuríkjum og fáum úthlutað í samræmi við heildarpottinn. Loks er það þannig að við semjum ekki við framleiðendur. Það er ekki samið við framleiðendur fyrr en markaðsleyfi er komið, þannig að þessir hlutir gerast í ákveðinni röð. Þegar sú staða var uppi fyrir jól, sem hv. þingmaður vísar í, þá var það þannig að við gátum á þeim tíma ekki vitað nákvæmlega hvaða tegund bóluefnis hentaði hvaða hópum. Það eru upplýsingar sem eru í raun og veru að koma fram eftir því sem öllu þessu ferli vindur fram, að sum efni henta betur fyrir tiltekna aldurshópa eða tiltekna hópa en önnur. Þess vegna þarf það líka að vera þannig að sóttvarnalæknir hefur ekki bara ákvarðanatökuvald að því er varðar þessa forgangshópa og röðun innan þeirra, heldur líka með hvaða hætti tilteknum bóluefnum er ráðstafað til mismunandi hópa.