151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:00]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er sannarlega rétt og við njótum auðvitað góðs af mörgum þáttum í íslensku samfélagi, ekki bara landfræðilegum þáttum sem auðvitað skipta miklu máli heldur líka því að við höfum borið gæfu til þess hingað til að vera samstiga inn á við og að gegnumsneitt hefur verið mikið traust á því sem sóttvarnayfirvöld hafa lagt til. Hins vegar er rétt er að spyrja þegar faraldurinn er í raun og veru að baki. Við erum stödd þar að við vitum ekki hversu langt er eftir. Það er til mikils ætlast af einu samfélagi að halda í úthald og þrek þegar staðan er slík. En mér hefur oft dottið það í hug að við þessar kringumstæður njótum við að sumu leyti þeirrar reynslu sem við höfum hér, þetta samfélag á þessari eyju, af því að glíma við náttúruhamfarir af ýmsu tagi.