öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Nokkuð ljóst þykir þeirri sem hér stendur að annað ferðasumarið hvað varðar það að taka á móti erlendum gestum sé farið fyrir bí og töluvert langt virðist í að hægt verði að aflétta núgildandi takmörkunum á landamærunum, bæði vegna þess að seint og illa virðist ætla að ganga að ná hjarðónæmi við Covid-19 hérlendis sem og í ljósi þess að nýtt og meira smitandi afbrigði vírussins herjar nú af miklum krafti í nágrannalöndum okkar. Fyrrum stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar, ferðaþjónustan, hangir á bláþræði og gríðarlegt atvinnuleysi hefur skollið á þjóðinni sem brýnt er að vinna á móti af krafti og með skapandi aðferðum. Ferðasumar hér innan lands gæti gert margt í þeim efnum og vegið upp á móti ástandinu. Það gæti brúað bilið að einhverju leyti þar til heimurinn kemst í ferðagang á ný.
Svo ég víki aðeins að því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra hér í upphafi þá telur hæstv. ráðherra að um mitt árið verður mögulega búið að bólusetja þorra þjóðarinnar. Ég vil spyrja ráðherra: Hvað þýðir það? Þýðir það að hér sé komið hjarðónæmi? Og hvað þýðir það út frá samspili við hertar aðgerðir, til að mynda á landamærunum?
En svo ég víki aftur máli mínu að því að hér innan lands geti orðið kröftugt ferðasumar þá þarf að vera svigrúm til að fólk geti nýtt sér framboð ferða- og veitingaþjónustunnar til að mynda. Gefið mál er t.d. að uppsafnaðar veislur gætu gert töluvert fyrir veitingageirann væru rýmri heimildir til að fólk geti komið saman. Eins er alveg rakið að skerpa samkeppnisstöðu Íslands hvað varðar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar og hækka hlutfallið upp í 35% eins og kallað hefur verið eftir og mennta- og menningarmálaráðherra hefur gefið út að áhugi sé fyrir að gera innan ríkisstjórnarinnar. Þar myndu eins og hendi væri veifað skapast fjölmörg störf innan öruggrar atvinnugreinar.
Forseti. Við ræðum hér bólusetningar og öflun bóluefnis og nú er bólusetningin blessunarlega hafin og eitthvað á veg komin hvað varðar að bólusetja viðkvæmustu hópana og þá sem starfa í framlínunni. Eftir því sem þeirri vinnu vindur fram hlýtur að draga úr þeirri lýðheilsuógn sem veirunni fylgir. Yfirlýst markmið hertra aðgerða eru jú þau að vernda heilsu þjóðarinnar og draga úr áhættu. En sú tölfræði sem snýr að því að meta hver áhættan er fyrir almannaheill á tilteknum sjúkdómi, þ.e. forsendur fyrir þeim ákvörðunum sem tillögur að hertum aðgerðum byggjast á, hlýtur að breytast í framhaldinu af þessu. Hliðaráhrif hertra aðgerða eru þau að atvinnuleysi á landinu eykst nú dag frá degi með þeim þungbæru afleiðingum sem slíkt hefur í för með sér fyrir efnahag þjóðarinnar, félagslega þætti samfélagsins sem og einmitt lýðheilsu. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort það standi til að skoða þessa samverkandi þætti af meiri nákvæmni, setja fram sviðsmyndir og þá með tilliti til þess að nauðsynlegt verður að aflétta takmörkunum innan lands til þess að hér geti orðið íslenskt ferðasumar innan lands og hjól atvinnulífsins tekið við sér að einhverju leyti. Er einhver vinna í gangi hvað varðar heildræna skoðun afléttinga og samspil efnahagsþátta atvinnulífsins og hertra aðgerða? Þetta tel ég, virðulegi forseti, að sé mikilvægt að fá á hreint og vita hver staðan er til að ferðaþjónustufyrirtæki t.d. geti skipulagt sig og undirbúið jarðveginn fyrir það sem getur verið hægt að gera í sumar hérlendis.