151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:05]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni spurningarnar og ég er ekki hissa á því að hún sé nokkuð áhugasöm um að fá upplýsingar um ferðasumarið 2021. Ég held að það sé sú staða sem við erum öll í. En ferðasumarið hér hangir líka á stöðu faraldursins og bólusetninga í löndunum í kringum okkur. Við gætum ekki gert áætlun um ferðasumarið 2021 nema við vissum nákvæmlega hvernig þessu öllu saman vindur fram. En ég vil bara fullvissa hv. þingmann um að það er fjölþætt vinna í gangi á hendi heilbrigðisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, ferðamálaráðuneytis, forsætisráðuneytis o.s.frv. um þessa þætti og margháttaðar greiningar. En hv. þingmaður veit að staðan er þannig núna að það er ferðabann í mörgum löndum í kringum okkur og við vitum ekki hvernig þessum löndum reiðir af í því að ná tökum á faraldrinum. Það er staðan núna. Hv. þingmaður verður að horfast í augu við að þetta er samspil við það sem er að gerast í löndunum í kringum okkur. En á sama tíma er á Íslandi minnst smit í Evrópu. Það er minnst smit í Evrópu á Íslandi og Ísland er í sjöunda sæti í heiminum í hraða bólusetninga, og, virðulegur forseti, í samræmi við litakóðunarkerfi Evrópu, sem við höfum núna, sjáum við að meðan flest löndin í kringum okkur eru núna á rauðu, á appelsínugulu, á gulu, er Ísland á grænu. Það er staðan hjá okkur núna.

Við verðum auðvitað að vona að þetta gangi vel alls staðar annars staðar, bæði að ráða niðurlögum faraldursins og bólusetja. Eftir því sem bólusetningu viðkvæmra hópa vindur fram þá komumst við nær því að lifa eðlilegu lífi í þessu samfélagi.